Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 45
BROT ÚR BARNAPRÉDIKUNUM
45
saman.9 Nurnberg-prédikanirnar 1533 eru nafnlausar, og lengi
var á huldu hver eða hverjir væru í rauninni höfundar þeirra, en
smám saman komust menn að raun um að Osiander hefði a.rn.k.
verið aðalhöfundur,10 og á seinni árum hefur þótt fullsannað að
hann væri einn höfundur þeirra allra.11
Utgáfa þessara barnaprédikana 1533 tengdist, eins og áður
segir, hinni nýju kirkjuskipan fyrir Brandenburg-Nurnberg, sem
var gefln út þetta sama ár og varð fyrirmynd kirkjuskipana víða
annars staðar á Þýskalandi þar sem kirkjuskipanir vóru gerðar í
lútherskum anda, og barnaprédikanirnar frá Núrnberg breiddust
út með þeim kirkjuskipunum.12 Þær vóru prentaðar margsinnis í
Þýskalandi næstu aldirnar, og frumtexti þeirra var gefinn út
1961.13
Prédikanirnar eru 22 að tölu, og auk formála er bókinni skipt í 6
hluta í samræmi við fræði Lúthers; almennur inngangur er að
hverjum þeirra þriggja fyrstu. I 1. hluta eru níu prédikanir um
boðorðin (9. og 10. boðorð í einni prédikun), í 2. hluta þrjár
prédikanir um trúarjátninguna, í 3. hluta sjö prédikanir um
bænina (drottinlega bæn), sín um hverja bæn, í 4. hluta er ein
prédikun um skírnina, í 5. hluta ein prédikun um skriftir og
syndafyrirgefningu („Vom ampt der schlússel“) og í 6. hluta ein
prédikun um kvöldmáltíðina. Um þessar prédikanir segir Werner
Jetter: „Sprachlich vorbildlich, fúr die Prediger handlich in
Einzelpredigten aufgeteilt, fúhren sie jeweils geschickt auf
Luthers Erklárungen hin und haben ihre rasche und weite
Verbreitung durchaus verdient.“14
Sá texti fræða Lúthers hinna minni, sem var tekinn upp í lok
hverrar prédikunar, víkur ofurlítið frá texta Lúthers sjálfs í útgáfu
hans 1529, og þau frávik koma mörg fram í þýðingu Justus
Jonas.15 Annars virðist Jonas hafa þýtt barnaprédikanirnar
9 Die evangelischen Kirchenordnungen XI (sjá nmgr. 7), 119; Gottfried Seebass, Das
reformatorische Werk des Andreas Osiander (sjá nmgr. 7), 249-50. - í D. Martin Luthers Werke
30,1 (sjá nmgr. 8), 619, eru prédikanirnar eignaðar þeim báðum, Osiander og Schleupner,
og svo er einnig hjá Halldóri Hermannssyni, Icelandic Books ... (sjá nmgr. 1), 15.
10 W. Möller, Andreas Osiander (Leben und ausgewáhlte Schriften der Váter und
Begriinder der lutherischen Kirche V, Elberfeld 1870), 218-20.
11 Gottfried Seebass, Das reformatorische Werk des Andreas Osiander (sjá nmgr. 7), 249-52;
Werner Jetter, ’Katechismuspredigt’, Theologische Realenzyklopadie XVII (Berlín, New York
1988), 751.
12 Die evangelischen Kirchenordnungen XI (sjá nmgr. 7), 122-25.
13 Die evangelischen Kirchenordnungen XI (sjá nmgr. 7), 125 og 206-79.
14 Theologische Realenzyklopddie XVII (sjá nmgr. 11), 751.
15 D. Martin Luthers Werke 30,1 (sjá nmgr. 8), 619-23 og 627.