Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 15
MINNISBLÖÐ SIGURÐAR LYNGE
15
honum fram í apríl. Par sem Sigurður stundaði sjó, hefur kennsl-
an farið eftir því, hvernig honum nýttist að frátökunum. En þar að
kom síðar að hann sinnti barnafræðslunni meira en í byrjun. Sem
að líkum lætur, var kennsla Sigurðar frumherjastarf á Akranesi.
Varðveitt er ein ræða hans frá því er hann tók á móti nemendum
sínum í upphafi kennslunnar. Þar skilar sér vel, hvað hann taldi
helst vert að brýna fyrir ungmennum sínum. Fer hér á eftir brot úr
þessari kveðju hans:
„Eigið þið að keppast eftir að læra gott siðferði, en byrjun góðs
siðferðis er það, að þið séuð hlýðin og eftirlát foreldrum ykkar og
vandamönnum heima og prýða dagfar ykkar með góðri um-
gengni við hvern mann á heimilinu, hvort hann á að sér meira eða
minna. Þið viljið sem von er, að ykkur séu sýnd góð atlot og
umgengni, og þá verðið þið að breyta eins við aðra, eins breyta þeir
við ykkur. Þið eigið ekki að sýna foreldrum né vandamönnum
neina heimtufrekju né óþakklæti, því það gjörir ykkur drambsöm
og óhugþekk bæði þeim og öðrum. Eg veit mikið vel, að þið skiljið
ekki þetta til hlítar sem yngst eruð, en þetta þurfið þið að skilja og
læra. Hinum elstu ykkar, sem meira vitið, vil ég vekja athuga um að
bera ykkur að vera fyrirmynd þeirra yngri í öllu góðu í því litla sem
þið getið, því ef þið gjörið það, þá megið þið reiða ykkur á, að þið
gangið á Guðs vegi og verðið af honum elskuð. Þið eigið því að
varast allt ósamlyndi ykkar á milli, bæði á þessum stað og yfir
höfuð hvert þið eruð samferða, og reynið af alefli að vaxa og
þroskast í öllu sem gott er og Guði þóknanlegt, og munið eftir því,
að þið eigið fyrir höndum að standa honum reikning á öllum
ykkar hugsunum, orðum og athöfnum, því trúið mér, að ein-
hverntíma verður það fyrr eða síðar.
Foreldrar ykkar hafa falið mér hið vandasama og ábyrgðar-
mikla verk á hendur að reyna að segja ykkur til að lesa og læra
ykkar kristindóm og að skýra hann fyrir ykkur og væntanlega til
þess að taka framförum í siðferðislegu tilliti. En með því ég er
öllum ófærari til þess, þá er ekki mikil von til, að þið takið
framförum þeim er teljandi verði.------Verðið þið fús á að hlýða
tillögum eða ráðum mínum í þessu mikilvæga efni, sem hér er um
að tala, þá væri heldur von, að þið tækjuð framforum, en bregðist
mér þetta, þá get ég engu komið til vegar og þá verður allt þetta
þýðingarlaust og til einskis gagns - og er sama sem að vilja byggja
með annarri hendi, en rífa jafnótt niður með hinni. Eg get ekki
látið vera að minnast á þetta atriði, hvaða dómur sem á mig kynni