Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 129
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
129
Mýri. Sjá grein Finnboga Guðmundssonar í þessari Árbók, Tvö
gömul erfiljóð Stephans G. Stephanssonar.
Steindór Steindórsson fv. skólameistari á Akureyri aflrenti
margvísleg gögn til viðbótar miklum gögnum, er áður voru frá
honum komin. Eru þau ílest frá sjálfum honurn og tengjast
gróðurrannsóknum hans, ritstörfum og þýðingum. Þessari send-
ingu fylgdu og ýmis handrit úr fórum Ólafar Sigurðardóttur frá
Hlöðum.
Anna Jónsdóttir, ekkja Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöfund-
ar, bætti enn við áður afhent handrit hans. Þar í er þýðing hans:
Mýs og menn eftir Steinbeck o.fl. þýðingar; þá „Seiður og hélog“,
slitur úr handritum; „Nokkrar vísur um veðrið,“ handrit 2. útgáfu
og enn íleira.
37 öskjur með ræðum og öðrum handritum sr. Jakobs Jónsson-
ar. Svava dóttir hans afhenti.
Kristján Guðlaugsson færði Landsbókasafni handrit íoður síns,
Guðlaugs Jónssonar lögregluþjóns, samkvæmt ósk hans. En Guð-
laugur, er lézt 3. des. 1981, hafði áður afhent Eandsbókasafni ýrnis
handrit (Lbs. 4241-48 8vo). Hér eru nú kornin til viðbótar m.a.
handrit að bók Guðlaugs, Bifreiðir á Islandi I—II; Brautryðjendur
íslenzkrar sundmenntar I—III, birtist í „Heirna er bezt“; Ur fórum
lögreglumanns 1 og 2; handrit að Árbók Ferðafélags íslands 1970.
Þá er llokkur handrita: Af byggðum Snæfellinga og Æviskrár, og
loks frásagnir og þættir.
Þórunn Valdimarsdóttir afhenti handritagjöf frá Sigurði J.
Líndal bónda á Lækjarmóti í Víðidal: „Frá Snorra presti Björns-
syni á Húsafelli“ eftir Jón Borgfirðing og Ólaf Davíðsson, Sperðill
og Jóhönnuraunir, Saga af Ciruse keisara o.fl.
Handrit úr fórurn dr. Björns Karels Þórólfssonar. Sigríður
dóttir hans afhenti um hendur dr. Aðalgeirs Kristjánssonar. Þar í
eru m.a. aðdrættir og undirbúningsgögn vegna útgáfu Brá-
vallarímna.
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður aflienti „Rímna- og kvæða-
handrit með hendi Jóhannesar Vigfússonar á Setbergi á Skógar-
strönd skrifað 1867-1869“. Hannes Þorsteinsson hefur skrifað á
skjólblað: „Handritið keypt 26. ágúst 1930 af Einvarði Hallvarðs-
syni frá Skutulsey. Hefur verið í eigu móðurfoður hans, Jóns
Jónssonar á Skiphyl (nú 82 ára (1930)).“
Stefán Jónsson: Það er gaman að syngja. Söngtextar barna.
Eiginhandarrit. Prentsmiðjuhandrit. Gjöf Guðmundar Þórhalls-
9*