Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 9
LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON
Minnisblöð Sigurðar Lynge á Akranesi
I
Senn er liðin hálf öld síðan við Helga Proppé, kona mín, gaum-
gæfðum náið það sem þá var út komið af handritaskrám Lands-
bókasafns til þess að vita hvað þar kynni að vera, er orðið gæti
okkur að haldi varðandi fyrirhugað rit um íslenska sjávarhætti.
Síðar birtust þrjú bindi af handritaskrám, sem athugaðar voru
með sama hætti. Margur pakkinn var skoðaður án nokkurrar
eftirtekju, en víða leyndist þó eitt og annað, sem betur var að vita af
en ekki, þótt smátt væri. Vitaskuld var okkur ljóst í upphafi að helst
væri eftir einhverju að slægjast, þar sem sjómenn höíðu lagt hönd
að, og sú varð og raunin. En mismikið var það eigi að síður og
margbreytilegt. Þegar upp var staðið, voru það einkum bækur
fimm sjómanna, sem af báru, fjórir úr Vestfirðingafjórðungi og
einn syðra.
Nyrstur var Níels Jónsson (1870-1934). Hann var bóndi á
Gjögri 1898-1905, en var eftir það á Grænhóli á Gjögri, fyrst og
síðast sjómaður. Hann byrjaði að skrá dagbækur 1. janúar 1893 og
hélt því áfram til 1. mars 1934. Úr duttu á þessu tímabili fast að
fjórum árum, svo að alls ná dagbækur Níelsar yfir 37 ár (Lbs.
25 03—25 504,°). Mest er um vert við þær, auk þess að fylgjast með
Níelsi sem sjómanni, orðaforði hans. Tíndi Helga, sem las bæk-
urnar, úr þeim öll orð, er hún taldi fágæt. Sumt gagnaði verki
okkar, annað ekki, og fóru þeir orðaseðlar allir til Orðabókar
Háskólans. - Margt er þar veðurfarsorða, sem ekki munu hafa
komist á bók.
Finnbogi Bernódusson (1892—1980) fluttist til Bolungarvíkur
um síðustu aldamót og átti þar heima upp frá því og var alla tíð
sjómaður. Hann skrifaði dagbækur í 66 ár eðá frá 1914—1980, þær
umfangsmestu, sem sjómaður hefur skráð og eru nú í Handrita-
deild Landsbókasafns (Lbs. 891-949 fol.). Haustið 1967 las ég
allar, sem hann hafði þá skrifað, en eftir það bættust nokkrar við,
sem ég kannaði síðar. Bækur Finnboga eru í 58 bindum, alls 16400
síður, þar af 5000 heilsíður. Þar sem Finnbogi kynntist fjölda