Skinfaxi - 01.12.1935, Page 61
SKINFAXI
141
Arnleifur Þórðarson hefir aldrei fariö í neinn skóla
qinnan en barnaskóla. En hann fór snemma að veita
dásemdum náttúrunnar eftirtekt. Blómin í dalnum og
skógarkjarrið i hlíðunum átti þar góðan vin, sem vildi
skilja líf þess og lífsskilyrði. Hann lærði ótrúlega fljótt,
með aðstoð „Flóru Islands“, að þekkja hinar ýmsu
•gróðurtegundir umhverfisins. Ilann leilaði einnig að-
• loðar góðra manna í þvi efni.
Garður Arnleifs Þórðarsonar.
Arnleifur er gott dæmi þess hve sjálfsnám getur
hjálpað mönnum langt áleiðis. Skólarnir eru ágætir og
sjálfsagðir, en nemendur þeirra verða að muna, að
það er sjálfsnámið, þegar út í lífið kemur, sem veitir
þeim hina sönnu menntun.
Fyrir 10 árum byrjaði Arnleifur að gróðursetja
hlóm og trjáplöntur í garðinum sinum. Nú eru sum
!rén orðin 3% metri á liæð. Þetla var fyrsti trjágarður-
inn i byggðarlaginu og svo liðu nokkur ár, að liann var
sá eini. En nú á síðasla eða tveimur síðustu árum liafa
hætzt við nokkrir garðar, og liefir Arnleifur aðstoðað
við suma þeirra.