Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 1

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 1
Skiufaxi I. 1937. Friður. Öll yeröldin hlustaði, Iangþreytt, löðrandi í blóði, líf hennar kvaldist á veiku, blaktandi skari: Bóndinn og kona hans báðust fyrir í liljóði, barnið hélt sig með leikföngin sín í vari, og blómið varla úr moldinni mjaka sér þorði, — milljónum tára rigndi á blöðin þess niður. Öll veröldin hlustaði, beið eftir einu orði, og orðið var: Friður . . Friður . . . Friður .... Og orðið kom. — Það hófst upp úr harmi og sárum, hreinna, dýpra, tignara en nokkru sinni áður. Á valinn sló þögn, — þetta var fyrir nítján árum, — og vonin strengdist sem rauður, geislandi þráður á milli hjartnanna, — huggunarríkur kraftur, sem hóf á ný upp úr forinni svívirtan lýðinn. Menn sögðu fagnandi: Stríð kemur aldrei aftur! Nú er illskan úr sögunni, — þetta var lokahríðin! Og bóndinn og kona hans blessuðu jörðina að nýju, og barnið fann aftur hið saklausa öryggi í leiknum, og blómið laugaði blöð sín í frjóregni hlýju, — það var bylting í loftinu, full af skapandi teiknum. Óreiginn reis upp úr rústum lífsóska sinna, — af réttlætiskröfum varð l)rungin tilveran snauða. Mannsbrjóstin sungu af þrá til að vaxa og vinna, — öll veröldin skalf af hrópum gegn þjáningu og dauða.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.