Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 13
SK1XFAX.I
13
bannað að taka þátt í fundinum. Framkvæmdanefnd
fundarins taldi sig ekki geta gengið að þeim skil-
málum; bauð Þjóðverjum hinsvegar, að gera sérstak-
lega grein fyrir viðhorfi þjóðernis-jafnaðarstefnunn-
ar til friðarmálanna, en það bar engan árangur, og
hörmuðu fundarmenn mjög fjarveru hins þýzka
æskulýðs. Einkum kom það í ljós í ræðum frönsku
fulltrúanna, og létu þeir ganga milli fundarmanna
skjal, þar sem þeir og aðrir nágrannar Þjóðverja
liétu á þá til samvinnu til tryggingar friðnum. —
Mussolini bannaði æsku Ítalíu að senda fulltrúa á
fund þenna, enda er eklci langt síðan, að hann rak
menntamálaráðherra sinn frá, vegna þess, að hon-
um þótti hann ekki nægur hernaðarsinni. Skipaði
hann í það embætti aftur gamlan herforingja, gráan
fyrir járnum, sem ekkert hefir annað unnið að
menntámálum en það, að gefa út nokkra smábæk-
linga um, hvernig mvrða megi menn á fljótvirkast-
an hátt, samkvæmt nýjustu reglum hernaðarlistar-
innar! (Eru þetta upplýsingar ítalsks stúdents, for-
manns æskulýðssambands mótmælenda á Ítalíu, er
hann gaf á kristilegum stúdentafundi í Sviss í sumar).
Forseti fundarins var kosinn H. Rolin, belgiskur
þingmaður og formaður Alþjóðasambands Þjóða-
handalagsfélaga. Fundurinn fór fram i „Batiment
Electoral", þar sem Þjóðabandalagið hefir haldið
hina stærri fundi sína. Var og orð á þvi haft, að
ekki væri laust við reimleika þarna. Þótti mörgum
sem vofur fagurra en óframkvæmdra álvktana og
ráðagerða svifi þar um sali.
Fvrsta fundardaginn voru ávörp flutt og grein gerð
fyrir ástandinu i hinum ýmsu löndum. Auðvitað
liöfðu sendinefndir Spánar og Kína þarna sérstöðu,
en víðar að voru þó geigvænlegar fréttir fluttar.
Allir þeir, er töluðu, höfðu þó frá voldugum og víð-
tæknm æskulýðssamhöndum að segja, er störfnðu að