Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 95
SKINFAXI
95
hið lága gjald sitt, og beinir gjaldkeri þeirri ósk til stjórna
allra sambandsfélaganna, að þau geri nú þegar upp viðskipti
sín við U.M.F.Í. og semji um skuldina, ef þau treysta sér ekki
til að greiða allt upp. — Allar peningasendingar til U.M.F.Í.
á að senda til gjaldkerans. Skattur 1937 á að vera greiddur
fyrir lok febrúarmánaðar.
Vídalínsklaustur í Görðum.
Jens Bjarnason bókari í Reykjavik hefir komið fram með
merkilega hugmynd um menningarstofnun að Görðum á Álfta-
nesi, til minningar um meistara Jón Yídalín. Telur hann þjóð-
inni skyit að minnast þessa mesta prédikara síns, eins og hún
minnist Hallgríms með kirkju i Saurbæ og Matthíasar með
bókhlöðu á Akureyri.
Jens Bjarnason hefir gefið út bækling um hugmynd sína.
Hefir hann afhent sambandsstjórn U.M.F.Í. að gjöf eintak af
bæklingnum handa hverju sambandsfélagi. Yar bæklingurinn
sendur félögunum um áramótin. Telur Skinfaxi sjálfsagl, að
félögin taki hugmyndina um Vídalinsklaustur lil umræðu og
athugunar.
Slysavarnir.
Um sama leyti færði annar ágætur maður sambandsstjórn
bókagjöf til sambandsfélaganna, eitt eintak handa hverju þeirra.
Það er Jón Oddgeir Jónsson skátaforingi, er gaf fræðibók, er
hann hefir samið og nefnist „F'orðizt slysin". Bók þessi var
send félögunum, ásamt hinni, og ætti að geta orðið þeim lil
mikilla gagnsmuna.
Bréfaskipti.
ívar Björnsson (17 ára), Steðja i Reykholtsdalshreppi í
Borgarfjarðarsýslu vill skrifast á við ungmennafélaga í öðr-
um héröðuin.
Bækur.
Fyrir fjórum árum gaf Sigurður Helgason, skólastjóri á
Klébergi, út smásagnasafn, er nefndist Svipir, Snoturt byrj-
andarit. Nú hefir hann sent frá sér skáldsögu, Ber er hver
að baki. Segir hún frá fátækum hjónum, Einari dulu og
Önnu konu hans, sem flytja með börn sín á afskekkta eyði-
jörð, og frá basli þeirra lmr, veikindum og dauða konunn-
ar og viðureign bónda-„dulunnar“ við harðskeytta sveitar-
höfðingja. Persónur sögunnar eru smáar og tilkomulitlar, en