Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 85
SKINFAXl
85
buguð og má heldur ekki verða yíirbuguð. En tilraunir til að
yfirbuga hana geta leitt til þess, að hún glali sínum bezta
vilja til að skilja kynslóðina á undan.
Nýlega hefir vakizt upp hörmulegt mál í skólum landsins.
Pólitiskir leiðtogar eldri kynslóðarinnar hafa reynt að safna
nemöndum skólanna undir sitt merki, með þvi yfirskyni, að
þeir væru að skipuleggja æskuna til varnar lýðræðinu i land-
inu og til að verja þjóðskipulagið. Þetta hefir svo verið köll-
uð „Vökumannahreyfing". Sumstaðar hefir verið reynt að
knýja alla nemendur skólanna inn i þessa „hreyfingu", með
yfirlýsingum um það, að þeir, sem ekki séu með ráðandi þjóð-
skipulagi og fylgjandi lýðræðinu í landinu, eigi að réttu lagi
að vera réttlausir i s'kólum landsins. Og til er það, að nein-
endur skóla hafi verið látnir skrifa undir yfirlýsingu um, að
þeir væru fylgjandi lýðræðinu, og voru þeir áður látnir skilja,
að mikið lægi við, að þessi yfirlýsing væri af þeim gefin.
Með þessu hefir á tvennan hátt verið vegið gegn þvi bezta,
sem hin eldri kynslóð hefir að gefa: sjálfu lýðræðinu. Fyrst
með því, að rjúfa þá friðhelgi, sem skólarnir hafa haft fyrir
pólitískri baráttu. Ef pólitískur félagsskapur (að vísu grímu-
búinn) eins og „Vökumannahreyfingin" er ekki aðeins leyfð-
ur, heldur líka talinn æskilegur, af kennurum skólanna og
forráðamönnum þeirra, er ekki með neinum lýðræðislegum
rétti liægt að banna annan pólitískan félagsskap i skólunum,
og vitanlega kemur þá hver stjórnmálaflokkur þar upp sínum
flokkssamtökum. í öðru lagi með því, að vilja beita skoðana-
kúgun við nemendur. Það er ekki aðeins brot á þeim grund-
vallarlögum, sem allt lýðræði byggist á, að menn, ungir sem
gamlir, hafi skoðanafrelsi, heldur er það eins' og um yfirlagða
tilraun væri að ræða til þess að svipta ungu kynslóðina vilj-
anum til að skilja eldri kynslóðina með samúð og bróðurhug.
Eldri kynslóðin hefir að vísu gert svo alvarlega tilraun til
að bera klæði á vopnin i þessu efni, að vonandi ]iarf ékki
lengur að óttast naktar eggjarnar. En tilræðið getur ekki
gleymzt, og þvi er það yngri kynslóðarinnar, að kunna að taka
því. Og til þess eru þessar línur ritaðar, að benda á það, að
þannig verður því tekið með mestum yfirburðum, að láta sem
elckert hafi gerzt. Þeir, sem að því stóðu, hafa sína miklu af-
sökun: Þeir vissu ekki, hvað þeir voru að gera. Þeir hafa og
fengið sína ráðningu, þvi að þeir hafa gert sjálfum sér mest-
an skaða. Unga kynslóðin má og vita það, að þeir eru í þessu
máli ekki fulltrúar lýðræðisins, heldur andstæðingar þess,
hvort sem þeir vita það sjálfir eða vita það ekki. Unga kyn-
slóðin þarf heldur ekkert að óttas't um frelsi sitt fyrir eldri