Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 61
SKINl-'AM
61
VIII.
Ritgerð þessari er nú þegar lokið. Og þar með er
þetta meginvandamál alþýðuæskunnar hér heirna og
um víðan heim afhent ungmennafélögunum til at-
hugunar og umræðu, en umfram allt til dáðríkrar
fyrirgreiðslu. Það munar þetta mál og livert mál ann-
að miklu, ef ungmennafélögin sameinast um að legg.ja
því óskipt lið. Þetta snertir að visu mest æsku bæj-
anna. En til þess verður að ætlast, að Umf. sveitanna
sé það ljóst, að þá eru atvinnuhorfur sveitaunglings-
ins heztar, þegar atvinnuleysi er minnst við sjóinn.
Svo nátengd eru atvinnuskilyrði og afkoma við sjó
og í sveit.
Það, sem Umf. leggjast á sveif þessa máls, verður
lagt í sameiginlegt átak margra, sem að málinu vilja
vinna. Höfundur greinar þessarar bar fram tillögur
um málið á fulltrúaþingi Sambands íslenzkra barna-
kennara s.l. sumar, og voru þær samþykktar. Skal nú
meginefni framanritaðs dregið saman í örstutt mál,
með því að prenta upp þessa samþykkt kennaraþings-
ins. En það lagði til að eftirfarandi yrði gert:
1. Að skrásetja atvinnulausa unglinga 14—18 ára,
safna skýrslum um hag aðstandenda þeirra og afla
upplýsinga um áhugaefni unglinganna og óskir þeirra
um framtíðarstörf.
2. Að banna launaða vinnu skólaskyldra barna þá
líma árs, sem skólar starfa.
3. Að styðja til skólavistar alla þá unglinga, sem
hafa áhuga og löngun til að stunda skólanám.
4. Að stofna til almennrar sjálfboðavinnu fyrir
atvinnulausa unglinga. Unnið sé að framkvæmdum,
sem almennri daglaunavinnu mundi ekki vera var-
ið til, með stuttum vinnutíma á dag, og kaupi, sem
hrökkur ríflega til fæðis og fata.
5. Að á heppilegum stað sé komið upp verstöð