Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 7
SKINFAXI
7
þeirra* er liættulegar eru heilsu og skapgerð uugra
manna. 3) Hér er einkum um ný viðfangsefni að
ræða. Aldrei hefir andlegu sjálfstæði einstaklinga og
þjóða verið jafnmikil liætta búin og nú, og sofandi
væri sá æskulýðsfélagsskapur, er ekki sniði starfsskrá
sína að nokkru samkvæmt því. Lagði síðasta sam-
bandsþing hér verulegt til mála. Þar var samþykkt,
að Ungmennafélögin skyldu herjast gegn stjórnar-
farslegu einræði. Er áreiðanlega hér um að ræða eitt
merkilegasta framtíðarhlutverk Ungmennafélaga.
Þeim l)er að vinna að því, að i voru fámenna þjóð-
félagi fari þau óheillaöfl i felur, er vilja hneppa æsku-
lýðinn i ánauðarfjötra um skoðanir og andlegan
þroska. Agi og skipulag i einkalífi og þjóðlífi er mik-
ils virði, en hvorugt næst fyrir ytri valdl)oð einstakra
einvaldsherra. Fyrir frjálsa þróun einstaklinga bless-
ast samfélag mannanna, og ekki með öðru móti. Tak-
markið er, að einstaklingurinn nái þeim þroska, að
hann liugsi sjálfstætt til heilla lieildinni, en ekki að
einn eða annar ofjarl hugsi í nafni heildarinnar, ein-
staklingnum til ófarnaðar. Öll fegurð tilverunnar, líf-
rænnar sem ólífrænnar, er fólgin í fjölbreytni. Lífs-
eðlið er samt við sig, en undur ])ess er fólgið i því,
hve farvegir þess eru oft furðulegir. Ungmennafélags-
skapurinn er mannræktarfélagsskapur. Hver einasti
ungur einstaklingur er honum loforð um mikið verk.
Og hann á að starfa í von og trú á efndir þeirra
loforða.
Tilgangur minn með því, að draga hér fram fyr-
greind fjögur atriði, er ekki sá, að marka stefnu Ung-
menuafélaga í framtíðinni. Með framanritari greinar-
gerð hefi eg aðeins viljað skapa fimmta atriði at-
lmgasemda minna eins konar umgjörð eða eðlilegt
umhverfi.