Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 54
54
SKINFAXI
og barnaleikvalla, ýmiskonar fegrun og snyrtingu
bæjanna, friðun, hreinsun og grisjun skógarleifa,
plöntun nýrra skóga, sandgræðslu og hefting upp-
blásturs, bygging viðlegukofa fyrir unglinga og ferða-
menn á viðavangi og öræfum. Svona mætti lengi
telja nauðsynleg verkefni, sem æskan liefir áliuga
á, og væri fús til að vinna að, ef henni er gert það
fært. Ungmennafélögum og öðrum æskulýðssamtök-
um yrði fráleitt skotaskuld úr því, að benda á nóg
verkefni og vekja áhuga á þeim.
Vanda verður sérstaklega vel val stjórnenda í þess-
ari sjálfboðavinnu, því að vinnan sjálf verður að
vera unglingunum skóli, sem þeir geti lært í lagvirkni
og hverskonar „vinnuvísindi“. — Vinnunni verður
auðvitað að fylgja nám í almennum fræðiun og beit-
ingu liugar og handa, á þann hátt, sem bezt fellur
við árstíð og umhverfi.
2. Námskeið í handavinnu og listiðnaði. Fjöl-
margir íslenzkir unglingar liafa mesta yndi af að
smiða og búa til á annan hátt l'agra og nytsama hluti.
Mikið er um hagleilt og hæfileika til listiðnaðar og
smekldegs handiðnaðar með þjóðinni, þó að þeir fái
litt notið sín hjá alþýðu manna, sökum skorts á þjálf-
un og kunnáttu. Atvinnulausir unglingar, sem áhuga
hafa og hæfileika í þessa átt, þurfa að eiga kost á
aðstöðu og tilsögn til að búa til einfalda, íagra og
góða bluti til heimilisnota og híbýlaprýði, enda er
vafalaust, að þeir geta skapað sér með þvi tekjur
til dráttar. — Unglingar þessir þurfa að fá jafn-
hliða nokkra kennslu í móðurmáli, reikningi, drátt-
list og ef til vill fleirum fræðum, og iþróttaaðstöðu.
Æskilegasta framkvæmd þessa atriðis held eg væri
sú, sem nú skal lýst: Kaupstaðirnir allir, og þau þorp,
sem hafa eitthvað af atvinnulausum unglingum eða
ekki mjög við bundnum, komi upp rúmgóðu hús-
næði með nægum verkfærum, er lagtækum ungmenn-