Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 3
Eiríkur J. Eiríksson:
Viðfangsefni ungmennaféíaga.
F u n d a r i’ r á s ö g n.
(Eiríkur J.Eiríksson guð-
fræðikandidat, kennari við
héraðsskólann aö Núpi, var
kjörinn varasambandsstjóri
U.M.F.I. á sambandsþingi
s.l. sumar. Skömmu siöar
fór hann utan, fyrst til Nor-
egs, í erindum U.M.F.Í., en
siðan til Sviss til fram-
haldsnáms i guðfræði og
uppeldisfræði. Dvelur hann
viS háskóla í Basel i vetur
og þaöan sendi hann Skin-
faxa þessa stórmerku rit-
gerð í haust. Er hún rituð
i byrjun október 1936).
I.
Ungmennafélagsskapurinn gat sér góÖan orðstír í
sjálfstæðisbaráttu íslendinga.
En nú er, því miður, svo málum komið, að sjálf-
slæðis- og þjóðernismálin hafa fengið nokkurt óorð
á sig, vegna þess, að þau liafa nú um skeið verið
liarðindahey unglinga, sem ált hafa vondu lilulverki
að gegna, en verið í vandræðum með vinsælt vöru-
merki. Hafa því margir gerzt þeirrar trúar, að sjálf-
stæðistal allt sé aumasti hégómi og þjóðernismál yfir-
skyn ills eins. Telja menn hér um of forn vígi að
ræða og fallin; viti þau ekki lengur að orustuvellin-
um og sé hlutverki ungmennafélaga lokið, er þessum
málum kemur við.
Þetla er með öllu rangt. Ungmennafélögin mega