Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 55
SKINFAXI
55
um sé alltaf frjást til afnota. í Reykjavík þyrfti
nokkrar slikar vinnustofur. I hverri vinnustofu þarf
að vera maður eða menn, sem sjá um að þar fari
allt fram í reglu og er fær um að veita leiðbeiningu
og kennslu i þeirri fjölbreyttu handavinnu, sem þar
mundi verða stunduð. í vinnustofum þessum þarf
að vera áhöld og aðstaða til að vinna að trésmiði,
tréskurði, málningu og annarri yfirborðsmeðferð tré-
muna, málmsmíði, pappa- og leðurvinnu, bókbandi,
körfugerð, leirmunagerð o. fl. Þar þyrfti og að vera
jafnan handbært nægilegt og fjölbreytt efni. Ef vel
heppnaðist um stjórn á slíkum vinnustofum, gætu
þær orðið hinar mestu nytjastofnanir á marga lund.
Mætti framleiðslan þar og námið vel verða til þess
að spara innflutning á töluverðu af misjafnlega
smekklegum hlutum til skrauts og gagns á heimil-
um, og bæta og mennta smekk fólksins um leið.
Þeim atvinnulausum unglingum, sem velja sér
verksvið og viðfangsefni í vinnustofum þessum, þurfa
að vera tryggð sömu friðindi og tekjur og rætt er
um hér að framan, að menn fái í frjálsri sjálfboða-
vinnu. Jafnframt verður að setja reglur um störf
þeirra og starfstíma í vinnustofunum. Mikið af þvi,
sem drengirnir þyrftu að fá fyrir snúð sinn, mundi
koma inn fyrir muni þá, er þeir byggju til, enda
þyrfti stofnunin (og æskulýðsfélögin) að vera bjálp-
leg um sölu þeirra. Er jafnvel sennilegt og enda vist,
að lagtækir unglingar gætu unnið sér fyrir sæmilegu
kaupi, ef þeir fengju þessa aðstöðu og heppilega
leiðbeiningu og stjórn. Er ekki úr vegi að geta þess
hér, að í Mölndal (verksmiðjuborg í grennd við
Gautaborg) starfaði í fyrra handavinnuskóli fyrir at-
vinnulausa unglinga. Hafði hann tryggt nemöndum
sínum 50—75 aura um bverja vinnustund, með því,
að selja fyrirfram það, sem unnið var. — Smíða-
námskeið fyrir atvinnulausa unglinga hér i Reykja-