Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 83
SKINFAM
83
tekið allmiki'ð eftir þremur flokkum mynda. Eitt er flokkur
raderinga úr þjóðsögum ýmsra landa, og eru hér sýndar fjör-
ar þeirra, úr íslenzkum þjóðsögum. Annað ern raderingar af
ýmsum gömlum, íslenzkum byggingum, beitarhúsum, torfbæj-
um, torfkirkjum, verbúðum o. fl. Þriðji flokkurinn er 30—40
teikningar „úr lífi íslenzku nýlendunnar í Kaupmannahöfn".
Auk þess að vera
vel gerðar, hafa þær
myndir allmikla sögu-
lega þýðingu, og
þyrfti flokkurinn all-
ur að komast i safn
hér heima.
Margar raderingar
Kristins eru mjög
prýðilegar, bæði
kofamyndir og þjóð-
sagna. Er vert að
benda ú það hér, að
alþýða manna, sem
lítil ráð hefir á að
skreyta híbýli sín
listaverkum, ræður
lielzt við að kaupa
raderingar, því að
þær kosta ef lil vill
ekki nema 15—25
krónur. Eru þær ó-
líkt smekklegri hi-
býlaprýði en glans-
myndirnar, sem viða
lýta íslenzkar stofur.
Skinfaxi sýnir les-
öndum sinum liér svip nokkurra iistaverka Kristins Péturs-
sonar, einkum höggmynda og raderinga. Því miður eru ekki
til prentmyndir af málverkum hans. Hefði þó verið æskilegt
að sýna einhver þeirra.
Madomia i skautbúningi.