Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 69
SKINFAXI
69
Saga er sögð,
— sagðar eru margar
góðar og gegnar
af Guðmundar ferðum
enda þær þó allar
á eina leið:
Ilann bar heim aftur
hollar minjar.
Guðmund leiddu
góðar dísir,
athafnasaman,
til ísafjarðar.
Varð hann þar að vonum
verkamikill,
margra mennta
merkisberi.
Hafði hann þar
í handavinnu
afbragðs kennslu
æskumönnum.
Skipuðust skarar
í skurðstofur.
Eyddust götur
að ungviði.
List var í löngun,
list í verki,
hagleikur í hönd,
hugvit i sálu,
ljóð í orðum,
ljóð i myndum
og í löframanns
tálguhnífi.
Gekk á guðs vegum
giftusamur
félagsskapar
forverjandi.
Stóðu hjá honum
með stúkubörnum
ungir, árvakrir
Isfi rðingar.
G. I. K.
U. M. F. Bifröst.
I eftirfarandi greinum minnast nokkrir félagsmenn
20 ára afmælis félagsins.
Guðm. Ingi Kristjánsson:
Ungmennafélagið Bifröst er 20 ára. I>að hefir haldið uppi
góðri og samfelldri starfsemi í öll þau ár. Það hefir jafnan
verið fámennt félag, sem hefir haft 15—26 félagsmenn og ýmsa
af þeim fjarverandi. En hinir, sem heima voru, liafa sótt fundi
vel og tekið virkan og lifandi þátt í uinræðum og athöfnum.
Meiri hluti starfandi félaga hefir yfirleitt verið á aldrinum
12—18 ára. Það hefir sett einkenni æskunnar á starfsemina.
Lítið hefir verið um verklegar framkvæmdir, en áhrifin á
hugsun fólksins hafa verið mikil. Bifröst hefir fyrst og fremst