Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 35
SKINFAXI
35
Ásta Sighvatsdóttir:
Húsmæðraskólinn á Laugum.
(Ritstj. Skinfaxa skoðaði húsmæðraskólann á Laugum s.l.
sumar og varð mjög hrifinn af þeirri smekkvísi og hagsýni,
sem þar er að sjá, og þó einkum af húsgögnum skólans. Bað
því ritstj. sérfróða konu um þessi efni og kunnuga skólanum,
frú Ástu Sighvatsdóttur á Blönduósi, um grein um skólann.)
Mér er sönn ánægja, að verða við þeirri beiðni
ritstjóra Skinfaxa, að skrifa nokkur orð um hús-
mæðraskólann á Laugum og húsbúnað þar.
Húsmæðraskólinn á Laugum i Þingeyjarsýslu lief-
ir ekki starfað nema í sjö ár, en hefir þó þegar, á
þeim stutta starfstíma, sýnt stefnu sína og áhrif. Það
dylst engum, er skólanum kynnist, hver stefna hans
er, og livert takmark lians á að verða.
Forstöðukona skólans, Kristjana Pétursdóttir frá
Gautlöndum, sem áður liafði veitt forstöðu Kvenna-
skólanum á Blönduósi um nokkur ár, var þegar i
byrjun skólans ráðin forstöðukona hans. Hafði hún
hönd í bagga með fyrirkomulagi og húsbúnaði skól-
ans. Hún hafði ákveðnar hugsjónir um uppeldismál
kvenna og fyrirkomulag þeirra skóla, er byggju þær
undir lífið. Hún hafði sérstaklega lagt sig fram, um
að kynna sér þau mál, og helgað sig þeim einvörð-
ungu. Nú gafst henni ttekifæri til þess, með stofn-
un nýs skóla, að byggja upp af þeim hugsjónum sín-
um og gera þær að veruleika. Byggja fyrirmyndar-
heimili, sem ekki væri aðeins inndælt að búa í, held-
ur fyrst og fremst skóli fyrir ungar stúlkur, þang-
að sem þær gætu sótt veganesti fyrir lífið. Skólinn
var byggður og sniðinn eftir þörfum íslenzkra sveita-
húsmæðra. Samhliða því, sem liann veitir kennslu
í þeim greinum, sem þær sérstaklega varðar, og eiga
að verða til þess að bæta aðstöðu þeirra i lífinu, þá
3*