Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 40
10
SKINFAXl
búningi og byggingu skólans, og svaraði hún því, að
það væri að vísu satt, en þó hefði forstöðukona hans
gefið honum mest, því að hún hefði lagt fram alla
krafta sína, ásamt sinni stóru sál.
Það er tvennt, sem sérstaklega einkennir liús-
mæðraskólann á Laugum: Það er hinn heimilislegi
og stílfagri svipur, er veita mun lialdgóða mennt
i að glæða og þroska smekk nemendanna, og sá
stjórnsami og mildi andi, sem rikir innan skólans.
Uppeldis- og skólamálin verða ætið liin þýðingar-
mestu mál bvers þjóðfélags. Þær stefnur, sem skól-
arnir marka, móta bæði einstaklinga og þjóðir. Á-
brif þeirra eiga þvi mikinn þátt í farsæld eða ófar-
sæld bvers þjóðfélags.
Megi hinni íslenzku æsku auðnast að tileinka sér
allt Iiið læzta, sem skólar okkar flytja henni.
Óskar Þórðarson frá Haga:
(Ort vegna skólaskemmtunar í Reykholti).
Ó, lof þér frelsi, framtíð þjóðardrauma,
sem fræknleik starfsins metur hærra en prjál.
Ó, heill þér fsland, eldur hlýrra strauma
býr innst í þínu hjarta og þinni sál.
Hér háði þjóðin stríð sitt dapra daga
og danskir kaupmenn frömdu á henni rán.
Og hennar líf var þrálát þrautasaga
um þyrna, myrkur, hörmungar og smán.