Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 31
SKINFAXI
31
er þess þörf, að fært sé til samræmis skipulag skóla-
mála þjóðanna og lærdómskröfur þeirra gerðar jafn-
ari en nú er.
6) Alþjóðleg námskeið, sumarskólar og þvíumlíkt
er og mjög þýðingarmikið til þess að auka á kynni
æskulýðs hinna ýmsu þjóða.
Til allrar þessarar starfsemi er þörf fjár, og ættu
allar þjóðir að leggja til þessa nokkurn skerf.“
Viðfangsefni IV. nefndar var: Skipulagning friðar-
starfs æskulýðsins.
Fer hér á eftir meginliluti ályktunar þessarar nefnd-
ar, sem um leið var ályktun fundarins:
„1) Stofnuð sé nefnd, er heiti: „Nefnd Alþjóða-
æskulýðsfúndarins" (Comité du Congrés Mondial de
la Jeunesse).
2) I nefnd þessari skulu eiga sæti 2 fulltrúar frá
félagasamböndum hinna einstöku landa og einn full-
trúi frá hverju þeirra alþjóðasambanda æskulýðsins,
er vinna vilja að friðarmálum. Hvor hinna tveggja
fulltrúa frá hverju hinna einstöku landa skal hafa
rétt til eins atkvæðis. Geti aðeins annar þeirra mætt,
fer hann með tvö atkvæði.
3) Nefnd þessi skal vera í náinni samvinu við Al-
þjóðasamband þjóðabandalagsfélaga. En fullkomið
frjálsræði hefir hún um starfsháttu sína i framtíð-
inni. Meðal annars skal starf hennar fólgið í eftir-
farandi:
a) Hún skal vinna að því, að friðarstarfsemi í hin-
um ýmsu löndum sé sem öflugust og að í henni taki
þátt sem flest félög, hverra flokka, sem þau annars
eru, eða skoðana.
b) Gefa skal hún út skýrslu um gjörðir hins fyrsta
æskulýðsfundar um friðarmál.
c) Hún skal undirbúa annan slíkan fund í náinni
framtíð.
Nefndin skal kjósa sér aðalritara, sem ábyrgur er