Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 19
SKINFAXI
19
I. nefnd hafði til meðí'erðar: Æskan og alþjóðleg
stjórnmálasamvinna. Mest bar þarna á Frökkum og
tillögum þeirra. Yoru þeir með mikið skjal með-
ferðis, sem um 30 félagasambönd í Frakklandi, mis-
munandi tilgangs og eðlis, höfðu skrifað undir. Var
þar margt fagurra orða og fágaðra setninga, og er
slíkt að yísu engin nýlunda um franskt plagg. En
mest var um það vert, að þarna virtist af einlægni
lalað og áhuga á að láta nú ekki lengur sitja við orð-
in tóm í þessum málum. — Ensku fulltrúarnir létu
og mjög til sin taka um starf þessarar nefndar. Var
að lokum samþykkt einskonar ályktun, og er upp-
haf hennar svo:
„Stríð er ekki óhjákvæmilegt. Vér berjumst fyrir
friði, þeim friði, sem varanlegur er. Hann byggist á
réttlæti, og skylda vor er, að vinna að framgangi
þess. Æska nútímans er völcnuð til skilnings um
hlutverk sitt og getu til skipulagningar alheimsfriðar.
Hún sameinast nú tii athafna og tekur ákvarðanir
að rödd hennar heyrist.
Ósigrar Þjóðabandalagsins verða ekki raktir fyrst
og fremst til skipulags þess. Ósigrar Þjóðabandalags-
ins eru ósigrar einstaklinga þjóðanna. Orsalcir þeirra
verða raktar til rikjandi almenningsálits með þjóð-
unum, og hinna ýmsu rilcisstjórna. Þjóðabandalag-
ið getur því aðeins uppfyllt skyldur sínar, að almenn-
ingsálit hinna einstöku landa fallist á tilgang þess
og styðji stefnu þess. Talcmarkið er, að Þjóðabanda-
lagið verði bandalag þjóða, en ekki einstakra ríkis-
stjórna. Innan Þjóðabandalagsins á að vera nefnd,
sem í eiga sæti fulltrúar frá þýðingarmestu þáttum
þjóðfélaganna, efnahagslegum, þjóðfélagslegum og
menningarlegum." — Síðan lcoma margvíslegar til-
lögur til umbóta á Þjóðabandalaginu og sáttmála
þess. Bent er á þörf þess, að Þjóðabandalagið hafi
sjálft tök á því, að framfylgja úrskurðum sínum, og
2*