Skinfaxi - 01.02.1937, Blaðsíða 59
SKINFAXl
59
en þeir vinna stórfellt gagn. (Sjá Skinfaxa 1934, 2.
hefti, og 1935, 2. hefti).
í þessu efni, eins og öðrum atvinnubótafram-
kvæmdum, er þörfin brýnust í Reykjavik og Hafnar-
firði. Rikið mun eiga jarðeignir í nágrenni þessara
hæja, og á slíkri jarðeign ætti sem skjótast að stofna
kennslubú fyrir þá atvinnulausu unglinga, sem hug
hafa til ræktunar, úr þessum bæjum. Mætti það ef
til vill leiða til einhvers afturhvarfs frá sjó til sveit-
ar, frá möl til moldar. Ef til vill gæti samvinna við
búnaðarskólana á Hólum og Hvanneyri bjargað öðr-
um stöðum, ef fyrirkomulagi skólanna verður breytt
og verklegt nám aukið, eins og nú er ráðgert.
VII.
í framanrituðu máli hafa verið lagðar fyrir ung-
mennafélaga og aðra lesendur Skinfaxa tillögur um
aðgerðir af hálfu samfélagsins til að eyða atvinnu-
leysi ungra manna, og um leið leitazt við að rök-
styðja þær. Tillögurnar miða að því, að láta alla þá
unglinga, sem fá ekki vinnu á opnum atvinnumark-
aði þjóðarinnar, fá viðfangsefni, sem veiti þeim lifs-
nauðsynjar í aðra hönd og girði fyrir að þeir bíði
tjún af iðjulegsi með öllum annmörkum þess, enda
sé það um leið undirbúningur undir atvinnu fram-
tíðarinnar. Tekið er tillit til þeirrar staðreyndar, að
einstaklingarnir eru næsta misjafnir að hæfileikum,
hneigðum og áhugamálum, og hæfir því ekki sama
viðfangsefni öllum. — Sjálfsagt er nokkuð unnið með
þvi, að nokkur liluti tillagnanna sé framkvæmdur.
En það skal undirstrikað, að því aðeins er viðunan-
lega unnið að þessu vandamáli af hálfu hins opin-
bera, stjórnarvalda samfélagsins, að unnið sé á öll-
um þeim sviðum, sem drepið er á hér að franutn.
Telja má vist, að stjórnmálamönnum þyki vanta
einn lið í tillögur þessar: bendingar um það, hvar