Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 16

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 16
16 SKINFAXl verður aldrei tryggður án gagngerðra umbóta á sviði þjóðfélagsmálanna.“ Þannig fórust þessurn kunna hagfræðingi m. a. orð. Annar liagfræðingur talaði þarna, P. W. Martin að uafpi, og er hann starfsmaður Atvinnumálaskrif- stofu Þjóðabandalagsins. Hann liefir ritað mjög mik- ið um hagfræðivandamál siðustu ára. Honum fórust m. a. orð á þessa leið: „Hlutverk liagfræðinnar er að sýna fram á leiðirnar til þess að milljónirnar öðlist nauðsynlegt viðurværi. — — — Árið 1929 voru 25 milljónir manna atvinnulaus- ar. Stríð' er óhjákvæmilegt, meðan fólk liefir á til- finningunni, að ekki sé rúm fyrir það i veröldinni. Þjóðfélög nútímans horfella að vísu ekki beinlínis þegna sína, en lélegt og ónógt viðurværi leiðir til þess, að þeir verða að lítilsigldum andlegum og lík- amlegum aumingjum, eða vandræðamönnum, sem svífast engis og vinna í þágu upplausnar og niður- rifs. Hér er menningin sjálf, liið æðsta verðmæti, i veði.-------Eg er þeirrar skoðunar, að ráða megi bót á ófremdarástandi samtjðarinnar, án þess að kasta miverandi þjóðskipulagi flestra rikja fyrir borð. Framtíð þjóðanna verður bezt tryggð með því, að skapa þeim skipulag, sem engin ein stjórnmála- eða hagfræðistefna liggur til grundvallar fyrir, heldur margar. Og yfirleitt er núverandi ástand ekki fyrst og fremst neinu ákveðnu skiplagi að kenna. Lífs- skoðanir einstaklinganna er aðalatriðið; trú þeirra og heimspeki. Allt hlýtur að mótast af mati þeirra á verðmætum og tilgangi lifsins; hvort þeir eru efnis- hyggjumenn eða keppa eftir einhverju, sem utan er eða ofan þessarar tilveru. 1 heimspeki Japana eru talin upp þrjú atriði, sem sagt er þar, að allt sé undir komið, að jafnvægi sé á milli: I. Maðurinn (þ. e. eðli hans). II. Hagfræðin (þ. e. skipulag það, er maðurinn á við að búa). III. Heimspekin (þ. e.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.