Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 18

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 18
18 SKINFAXI ista í Rússlandi. Ræða hans var í þremur köflum. Fyrsti hlutinn var einkum fólginn í skilgreiningu friðarliugtaksins, og kvað ræðumaður frið vera frelsi og jafnrétti þjóða og einstaklinga þeirra. Miðhluta ræðunnar var ætlað að sýna fram á, að þessum friði væri nú náð í Rússlandi. 1 umræðum, sem leyfðar voru á eftir ræðunni, var þessi þáttur liennar eink- um dreginn i efa og gagnrýndur, en ræðumaður vís- aði jöfnum höndum til rita Lenins og liinnar nýju stjórnarskrár, máli sínu til sönnunar. Urðu uinræð- ur þessar fram eftir nóttu, og liélt þeim áfram i einni nefnda fundarins, og verður vikið að því síðar. Siðasti þáttur ræðunnar var áskorun til æsku allra landa, að sameinast nú til verndar alþjóðafriði. „Menn segja, að vér kommúnistar séum óvinir lca- þólskra manna. Eg fullyrði, að þetta er rangt; vor í miili er engin ástæða til tortryggni og þvi siður til fjandskapar. 1 dag færa sameiginleg áhugamál oss saman. Þáu álnigamál eru: Barátta fyrir friði og samvizkufrelsi. Vér getum unnið, og oss ber skylda til að vinna í bróðerni saman að varðveizlu friðar- ins með þjóðunum. — — — — í nafni milljóna frjálsra æskumanna Sovétlýðveldanna lieiti eg 5'ður, að vér munum, ásamt yður, gera allt til þess, að forða mannkynina frá háska nýrrar heimsstyrjaldar.“ Vegna þess, að Þýzkaland og Ítalía áttu þarna enga opinbera fulltrúa, var engin grein gerð fyrir afstöðu „fascismans“ eða „national-socialismans“ til frið- arins. Engin tök eru á því, að gera hér frekari grein fyrir ræðum manna á fundi þessum, og verður nú horfið að því, að segja nokkuð frá starfi nefnda þeirra, er unnu síðari hluta fundartímans. Þær voru fjórar, og með því að eg var einn mins liðs, var mér erfitt að fylgjast sem skyldi með starfi þeirra allra. Verður þessi greinargerð því ófullkomin.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.