Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 34

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 34
34 SKINFAXl þarna sæti fulltrúar frá þremur fjölmennustu æsku- lýðssamtökum heimsins. Einn hinna brezku fulltrúa var valinn aðalritari. Yfirliti minu er nú lokið, og vona eg, að af því megi öllum ljóst vera, hverskonar hreyfing er hér hafin. Að lokum tillögur: 1) Eg legg til, að U.M.F.Í. taki baráttu fyrir frið- armálum upp á stefnuskrá sína og lielgi þeim sér- stakt rúm í Skinfaxa. Eg tel mig hafa rökstutt þessa tillögu fyrr í þessari grein. Tel eg vafalaust, að þetta myndi verða til fjörgunar og fjölbreytni í starfi Ung- mennafélaga og færa þau nær viðfangsefnum líðandi stunda og því, sem er að gerast umhverfis oss. 2) Eg legg til, að Sambandsstjórn U.M.F.Í. sé heim- ilað að skipa þriggja manna nefnd, er sérstaklega liafi þessi mál með höndum, og sé starfsmaður U.M. F.í einn nefndarmanna. Nefnd þessi leiti siðan sam- vinnu við önnur æskulýðsfélög um þessi mál. Eg vænti þess, að þetta mál verði rætt í sambands- stjórn og félögum úti um land. Hér er um að ræða verkefni, sem félagsskapur vor hlýtur að vaxa af að fást við. Hann á að hafa forgöngu þessara mála, en láta þau ekki stjórnmálafélögum eftir. Er ekki að öllu leyti eðlilegt að þau taki þau að sér. Líklegt tel eg, að ritstjóri Skinfaxa bjóði velkomnar umræður um þetta mál i riti sínu. Öllum mun ljóst, að hér er um stórmál að ræða, — mál, er snertir framtíð fslands og æsku þess. Öll- úm ætti og að vera Ijóst, að æska annarra landa fer af stað um íhlutun þessara mála af einlægni og skyn- semi. í milljónamergð sinni réttir hún oss nú bróður- hönd til samvinnu. Ættum vér í fæð vorri að for- smá slíkt? Ungmennafélagar! Sjáum sóma vorn og þjóðar vorrar og verðum fvrstir til að rétta sam- starfshönd yfir hafið.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.