Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 50

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 50
50 SKINFAXl Um slíka framhalds-skólaskyldu og vinnuskóla fyr- ir unglinga þýðir sjálfsagt ekki að ræða í bráð, nema sem fjarlæga og óframkvæmanlega liugsjón. Oss vant- ar húsrúm og hæfa kennslukrafta, skilning, vilja og fé, til þess að koma þeim á. En á meðan svo standa sakir, verður þó að gera þá kröfu, sem selt er fram hér að framan, um sem greiðastan aðgang að fram- haldsskólum, fyrir námfúsa unglinga, með því t. d. að sá hluti námskostnaðar, sem þeir og aðstandend- ur þeirra ráða ekki við, sé greiddur af þvi fé, sem ætlað er til að eyða atvinnuleysi unglinga. V. Um leið og vinnufúsir unglingar og fullhraustir karlmenn ganga atvinnulausir, er það nokkuð algengl, að skólaskyld börn vanræki nám sitt og skólasókn, vegna þess, að þau hafa verið ráðin til atvinnu. Sjálf- sagt er það ekki nema gott og blessað, að börn séu látin vinna þau verk, sem í engu ofbjóða getu þeirra og þoli, þegar svo stendur á, að vinnuframboð er meira en það, sem fulltiða menn og verkfærir ung- lingar komast yfir að vinna. En þegar skortur er á atvinnu, eins og nú tíðkast, mega börnin ekki vera keppinautar verkfærs fólks um þá vinnu, sem til fellst. Enda munu skólastörfin yfirleitt vera börn- iim nægileg viðfangsefni, ef þau eru rækt af sam- vizkusemi. Hitt er annað mál og merkilegt, en kem- ur ekki við efni þessarar greinar, að allmjög þyrfti að breyta um vinnuhætti í barnaskólunum. Enda stefnir nú mjög í þá átt, að samræma starfsaðferðir barnaskólanna þekkingu nútimans á vaxtareðli og þroskaþörf þess aldurs, sem þeir starfa fyrir. Eg slcal nefna nokkur nærtæk dæmi, til að sýna ástandið: Eitt sinn fengu tveir skólaskyldir drengir, sem skráðir voru í bekk minn í Austurbæjarskóla Reykjavikur, undanþágu frá skólasókn, hjá skóla-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.