Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 60

Skinfaxi - 01.02.1937, Page 60
S K 1N l-'A XI 60 taka skuli fé til þeirra framkvæmda, sem stungið er upp á. Þar er þessu til að svara: Fyrsl er að gera sér Ijósa nauðsynina á aðgerðum, síðan að sjá hvern- ig fremja þarf aðgerðirnar. Þegar það er ljóst og menn finna knýjandi þörfina á framkvæmdum, þá opnast alltaf fjárhagslegir möguleikar. Það er ljót,. háskaleg og syndsamleg blekking, að róa og svæfa sig og aðra með því, að ekkert sé unnt að gera fyr- ir fátækt og amlóðaliætti, þegar nokkur hluti af æsku þjóðarinnar er í menningarlegum og siðlegum háska staddur. Enginn sæmilegur drengur getur látið neina af þeim framkvæmdum, sem hér er stungið upp á, stranda á fjárskorti, meðan þjóðin eyðir fé eins og fábjáni i tóbak, brennivín og marga aðra fánýta og ónýta hluti. Vér, sem fáumst við uppeldisfræði og erum kunn- ugir eðli og þörfum og þrám æskumanna, höfum þá skyldu, að benda á leiðir út úr þeim voða, sem at- vinnuleysið er þeim. Aftur þarf aðra þekkingu og kunnugleika á öðrum sviðum, til þess að sjá fjár- hagshlið inálsins vel borgið. Sá, sem þetta ritar, hef- ir ekki þá þekkingu og kunnugleika. Skal þó til af- sökunar benda á þessar leiðir til þess að gera fjár- hagslega kleift að koma tillögunum fram: 1. Að ætla atvinnulausum unglingum vissan hluta af því fé, sem ríki og bæir veita til atvinnubóta. 2. Að láta til starfseminnar meðal atvinnulausra unglinga vissan ríflegan hluta af tóbakstekjum og áfengisgróða ríkisins. 3. Að leggja á þá, sem hafa fasta atvinnu, víssan skatt „eftir efnum og ástæðum“, til að hæta úr hölí hinna, sem eru atvinnulausir. 4. Að ríkið eða hæirnir taki einkaleyfi á kvik- myndasýningum og verji ágóðanum af þeim tiI bjarg- ar atvinnulausri æsku.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.