Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1937, Síða 77

Skinfaxi - 01.02.1937, Síða 77
SKINFAXI 77 þetla tvennt, sem öll menning nútíðar þjóðfélags byggist á. Við höfum kannske aldrei komizt langt i þessum lærdómi, en miklu styttra hefðum við þó komizt, ef við hefðum ekki notið Bifrastar. Og svipaða sögu hefir fjöldi manna um allt land að segja um sín ungmennafélög. Það var engin tilviljun, að flestir eða allir beztu félagsmennirnir í skólafélagi okkar i Kennaraskólanum, þegar ég var þar, voru félagslega þjálf- aðir úr ungmennafélögunum. Og einmitt þetta er hið mikla afrek ungmennafélaganna: Þau hafa gert þúsundir manna betri og starfhæfari þjóðfélagsþegna en þeir hefðu annars orðið. Bifröst sé þökk fyrir þann skerf, sem hún hefir lagt fram til þeirra mála. Halldór Kristjánsson: Fyrir þrettán árum var ég nýliði í Bifröst. Spurningin: Hvað hefir þú gert í dag? var til umræðu. „Orðið gekk“, eins og við kölluðum það, og títt er, þegar létt mál eru rædd. Fund- armenn töluðu í þeirri röð, sem þeir sátu. Ég líka. „Ræðan“ var ekki löng, en mér sortnaði fyrir augum og ég heyrði hjartslátt minn. Slík var byrjunin. Ég hefi stundum á seinni árum, ef ég hefi átt i smávegis erjum á fundum, eins og við hefir borið, hugsað lil þessarar byrjunar og litið yfir þann feril, sem á milli liggur. Og mér er ljóst, að það var sá rikjandi félagsandi Bifrastar, að það væri skömm, að stelast undan merkjum og skerast úr leik, sem ýtti mér út í byrjunina. Það lá þar i lofti, að það væri heiður, að gera sitt til þess, að leysa félagsstörfin. Meðvit- undin um ábyrgð og skyldu gagnvart samfélaginu var óvenju glöð og vakandi í Bifröst. Það réði úrslitum. Og svo er enn. Það er dæmalaust í Bifröst, að menn hafi skorazt undan því, að flytja eitthvert mál á fund, þegar þeir hafa fengið sæti i verkefnisnefnd. Auðvitað hafa þeir ráðið sjálfir, hvert málið var. Þetta er sá félagsandi, sem knýr fólkið til starfa. Enginn veit, hvað margar tómstundir unglingarnir í Bif- röst hafa helgað félagi sinu. Hitt vitum við öll, að þær eru margar. Það tekur töluverðan tíma fyrir óvanan ungling, að ganga frá einni fundargerð, eða einni blaðagrein, þótt smá sé, eða búa sig undir eina framsögu. En slik viðfangsefni eru höfuðnauðsyn æskunnar. Ekkert er ósamboðnara æskunni né háskalegra, en andleg fátækt, áhugaleysi, allsleysi hug- sjóna og hugðarefna. Eyðandi tóm nístir hjarta hins andlcga
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.