Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 91

Skinfaxi - 01.02.1937, Side 91
SKINFAXI 91 íslenzkar vörur — íslenzkt mál. Eins og kunnugt er, hefir íslenzkur iðnaður aukizt gleði- lega mikið síðustu ár, bæði að fjölbreytni og magni. Og með vaxandi kunnáttu og tækni batnar framlelðslan, svo að vöru- gæði svara nú oftast þeim kröfuni, sem gera verður um þau, og þola samanburð við erlenda framleiðslu. En í einu efni gera ýmsir iðnaðarmenn vorir sig bera um slíkan sóðaskap og þvílíkt smekkleysi, að furðu gegnir. En það er i vali þeirra vöruheita, sem þeir prenta eða móta eða festa á annan hátt á vörur sinar. Oftast eru vöruheitin hrein- erlend eða hálferlend, en stundum heimagerð skrípi. Hirðir Skinfaxi eigi um að telja upp dæmi um þetta, en hver maður getur séð þau í næstu húð. Góðar íslenzkar vörur eiga að bera islenzk heiti, svo að góðir íslendingar geti notað þær gremjulaust og án blygð- unar. Fallegt nafn. „Akademíska arkitektafélagið“ var stofnað í Reykjavík fyr- ir skömmu. Formaður þess kvað vera — húsameistari ríkisins. Félagsmál. BARÁTTURAGUR U.M.F.Í. Á síðasta sambandsþingi U.M.F.Í. var eftirfarandi ályktun samþykkt i einu liljóði: „Sambandsþing U.M.F.Í. 193(i ályktar, að ungmennafélagar skuli gera 17. júní ár hvert, frá og með árinu 1937, að sér- stökum baráttudegi fyrir stefnumálum sínum. Telur þingið vel við eiga, að dag þennan fari fram merkjasala til ágóða fyrir U.M.F.Í." Eg hygg ekki, að þessi hugmynd, að ungmennafélagar ættu sér sérstakan sameiginlegan haráttudag, hafi komið fram áð- ur, og hefi einnig ástæðu til að ætla, að hún hafi komið fram á þinginu eingöngu vegna þess viðsýnis og stórhuga, sem, þrátt fyrir ýmsa örðugleika félagsskaparins, ríkti þar. Að vísu varð einhver einn til þess að kveða upp úr mcð þessa tillögu, en þó var eins og hún væri töluð úr huga hvers eins, og á sama hátt varð einhver til þess að kvcða upp úr með, að þessi dagur skyldi einmitt vera 17. júni og allir sáu, að fyrir baráttudag ungmennafélaga íslands var aðeins um

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.