Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 53
□ Nákuðungur
(Nucella lapillus)
A Þangdoppa
{Littorina obtusata)
O Klettadoppa
(Littorina saxatilis)
□ Fjörufló □ Þanglús
(Gammarus oceanicus) (ldotea granulosa)
^ Fjörufló ^ Fjörulýs
(Gammarus obtusatus) (Jaera spp.)
O Þangfló O Fjörurykmý
(Hyale nilssoni) . (Cricotopus variabiUs)
3. mynd. Fjöldi nokkurra algengra fjörudýra í mismunandi hœð fjörunnar í Straumsvík.
Punktar sýna meðalfjölda sem byggður er á talningum á 6 stöðvum í hverri hœð, en
kannað flatarmál á stöð var 800 sm2. Athuga ber að kvarðinn á x-ásnum er lógariþmískur.
- The abundance of some common shore invertebrates at different height levels in the
intertidal zone of Straumsvík. The points are averages based on counts at six stations at
eacli height level, tlie area investigated at each station being 800 cm2 in size. Note that the
x-axis is logarithmic.
einnig víða dafna þokkalega undir þanginu
sé það ekki of þétt. Hann er síari, sem nær
smásæjum lífverum og lífrænum ögnum úr
sjónum, og gæti þétt og mikið þang orðið til
trafala við þess háttar fæðuöflun.
Nokkuð er af hrúðurkarli (Balanus bal-
anoides) um miðbik fjörunnar í Straumsvík,
en ekki er hann áberandi þar. Hann er síari
eins og kræklingurinn og þrffst jafnan best
þar sem þang erekki mikið.
Nokkrar tegundir ntarflóa eru algengar í
Straumsvíkurfjörum. Einna mest er af svo-
kallaðri þangfló (Hyale nilssoni) (3. mynd).
Hún heldur sig mest í þanginu sjálfu og
stekkur mikið þegar hún er styggð, t.d.
þegar hróflað er við þanginu. Aðeins ein
önnur tegund íslenskra marflóa stekkur á
sarna hátt og þangflóin og er það fitjaflóin
(Orchesta gammarellus). Hún er mun stærri
og heldur sig eingöngu allra efst í fjörunni,
ofan þangsins í hinum grasi vöxnu sjávar-
fitjum. Hún hefur fundist við Straumsvík en
virðist ekki algeng. Báðar þessar tegundir
ganga um á réttum kili, en aðrar tegundir
marl'lóa skríða á hliðinni þegar þær eru á
þurru. Aðrar algengar marflær í Straumsvík
eru tegundirnar Gammarus obtusatus og G.
oceanicus, sem ganga undir samheitinu
fjöruflær. Báðar eru nær eingöngu í neðri
hluta fjörunnar. Þetta eru flærnar sent
finnast stundum í iðandi kös undir steinum.
Þær hörfa þangað í skjólið og rakann þegar
lágsjávað er, en synda eflaust víða um á
flóðinu. Marflær eru ekki við eina fjölina felldar
í fæðuvali, en á stómm hluta lifa þær á lífrænum
leifum ýmiss konar, eru svokallaðar grotætur.
Tvær tegundir þanglúsa eru algengar í
fjörum Straumsvíkur. Annars vegar em hinar
211