Náttúrufræðingurinn - 1998, Síða 77
1. tafla. Áœtluð losun mengunarejha frá álframleiðslu í Straumsvík 1980-1996.
Ár Framleitt ál (tonn) Flúoríð (kg/tonn ál) Flúoríð (tonn) Ryk (tonn) Brennisteinsdíoxíð (tonn)
1980 74.794 15,20 1.137 2.408 1.444
1981 74.577 14,00 1.044 2.408 1.447
1982 77.389 8,80 681 1.401 1.577
1983 77,011 3,50 270 330 1.436
1984 82.391 6,50 536 552 1.489
1985 76.761 6,50 499 514 1.311
1986 79.440 6,00 477 588 1.473
1987 84.579 6,80 575 719 1.587
1988 82.237 7,00 576 428 1.485
1989 88.688 6,40 568 625 1.441
1990 87.239 5,00 433 290 1.480
1991 89.217 401 1.546
1992 90.045 1,05 95 70 1.558
1993 94.152 1,30 122 49 1.610
1994 98.595 1,41 139 50 1.680
1995 100.198 1,60 160 48 1.543
1996 103.362 1,18 122 68
■ þróun loftmengunar
frá Alverinu í
STRAUMSVÍK
Alverið í Straumsvík hóf framleiðslu árið
1969. Framleiðslanjókst síðan með stækkun
kerskála og fjölgun kera. Hreinsibúnaður
var enginn fyrstu árin og öll mengun úr
kerunum barst óheft út í umhverfið. Fór hún
vaxandi með aukinni framleiðslu. Mengun í
úlblæstri var fyrst mæld 1977 en mælingar
urðu ekki reglubundnarfyrren eftir 1980.
Undir lok áttunda áratugarins var byrjað
að reisa þurrhreinsistöðvar við álverið og
settar þekjur á kerin til að beina reyknum til
þeirra. Þessu var lokið árið 1982. Aðgerðirn-
ar skiluðu verulegum árangri, þó að hann
þætti ekki fullnægjandi til lengdar. Fyrstu
þekjurnar, sem stjórnað var með handafli,
reyndust illa í álverinu í Straumsvík. Erfitt
reyndist því að viðhalda þeim árangri sem
náðst hafði í upphafi.
Af þessum ástæðum var afráðið að setja
rafstýrðar felliþekjur á öll kerin og lauk því
árið 1992. Þá hefur verið unnið að endur-
bótum á vinnuaðferðum við kerin, stýringu
þeirra og annarri stjórnun framleiðslunnar.
Við þetta hefur tekist að minnka magn þess
flúoríðs sem tapast út í umhverfið niður í
einn fimmta af því sem var 1984-1990, miðað
við framleiðslueiningu, og ryktapið er nú
u.þ.b. einn tíundi af því sem það var á sama
tímabili.
1. tafla sýnir þróunina í útblæstri flúoríða,
ryks og brennisteinsdíoxíðs á tímabilinu
1980-1996. Fyrir 1980 var útblástur flúoríða
og ryks 15-35 kg/tonn af áli með enn hærri
toppum. Eftir að þekjurnar og þurrhreinsi-
stöðvarnar voru teknar í notkun 1982 féll
flúoríðútstreymi um meira en helming og
rykútstreymið enn meira.
Með bættri stýringu kerjanna minnkar
einnig útblástur kolflúorsambanda. Á 1.
mynd er sýnd áætlun Hollustuverndar
ríkisins um þróun losunar kolflúorsambanda
frá 1988 til 1996.
235