Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 6

Andvari - 01.10.1960, Side 6
196 STEFÁN PJETURSSON ANDVARl hér allmikið aukið. En kannski mætti það nægja til að minna menn á, að Jón Þorkelsson var ekki aðeins skáld, heldur og fræðimaður og skjalavörður, og vann varanleg afreksverk í þágu þjóðarinnar á öllum þessum sviðum. Jón Þorkelsson fæddist að Ásum í Skaftártungu ,,á Magnúsmessu Eyja- jarls“ — svo sagði hann sjállur — „hinn 16. apríl 1859“. Foreldrar hans voru séra Þorkell Eyjólfsson, þá sóknarprestur að Ásum', síÖar að Borg á Mýrum og Staðastað, og kona hans, Ragnheiður Pálsdóttir. Voru þau bæði kvistir á sterk- um, gömlum stofnum. Séra Þorkell, sem sjálfur var merkisklerkur og svo vel að sér, að hann kenndi mörgum undir skóla, þar á meÖal Guðbrandi frænda sínum Vigfússyni, — faðir séra Þorkels og móðir GuÖbrands voru systkin, — var sonur séra Eyjólfs, síðast prests í Miðdalaþingum, Gíslasonar prests að Breiða- bólstað á Skógarströnd Ólafssonar biskups í Skálholti Gíslasonar; en móðir séra Þorkels var Guðrún, dóttir séra Jóns Þorlákssonar, þjóöskáldsins á Bægisá, og konu hans, Margrétar Bogadóttur í Hrappsey Benediktssonar. Móðir Margrétar, Þrúður, sem var fyrsta kona Boga í Elrappsey, var dóttir Bjarna hins ríka á Skarði Péturssonar, senr komin var í beinan karllegg af Staðarhóls-Páli; en móðir séra Þorláks, föður séra Jóns á Bægisá, var Margrét Arngrímsdóttir Jónssonar í Sælingsdalstungu Arngrímssonar prófasts hins lærða á Melstað Jónssonar. — Ragnheiður, kona séra Þorkels, sem sízt stóð manni sínum að baki að ættgöfgi, var dóttir séra Páls prófasts í Hörgsdal Pálssonar; en móðir séra Páls var Ragn- heiÖur GuÖmundsdóttir í Þormóðsdal Sæmundssonar á Kjallaksstöðum Þórðar- sonar prófasts á Staðarstað Jónssonar biskups á Hólum (Bauka-Jóns) Vigfús- sonar sýslumanns á Stórólfshvoli Gíslasonar lögmanns í Bræðratungu Hákonar- sonar. Kona Jóns biskups Vigfússonar og móðir séra Þórðar á Staðarstað, Guð- ríður, var dóttir séra Þórðar, prests í Hítardal, hins merka fræðimanns, og konu hans, Helgu Árnadóttur lögmanns á Leirá Oddssonar biskups í Skálholti Einarssonar; en kona Odds biskups og móðir Árna lögmanns var Helga Jóns- dóttir sýslumanns á Grund í Eyjafirði Björnssonar prófasts á Melstað Jónssonar biskups á Hólum Arasonar. — Var Jón Þorkelsson þannig bæði í föður- og móðurætt kominn af mörgum hinum merkustu og stórbrotnustu mönnum þjóðarinnar á síðari öldum. Kunni hann og vel að meta slíkt ætterni, var stoltur af því; enda má sjá þess margvíslegan vott í rituin hans, að það var honuin jafnan hugstætt. En af föður og móður hafði hann ekki mikið að segja í uppvextinum- Minntist hann þess löngu síðar, þá kominn á efri ár, svofelldum orðum i kvæðinu um Minnu, fóstru sína:

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.