Andvari - 01.10.1960, Blaðsíða 85
ANDVARI
NÝ SALTVINNSLUVIÐHORF
275
Línurit, sem sýnir hugsanlegt fyrirkomulag á saltvinnslu úr sjó. Þessi mynd sýnir marg-
þrepa eima við frumvinnsluna. Teikningin hér er táknræn heildarmynd fremur en hún
sýni smærri reksturs- og tækniatriði.
liggur því alls ekki í sjálfri saltgerðinni.
Það sem mest veltur á, er þvert á móti
frumvinnslan. Fullsaltur sjór inniheldur
28 kg af salti í hverjum rúmmetra. Af því
má ná 25 kg við góð vinnuskilyrði. Les-
andinn mun hafa tekið eftir að bæði
frumvinnslan og saltgerðin er í megin-
atriðum brottnám vatns. Gerurn ráð fyrir,
að í saltgerðarþættinum séu numin burtu
4 kg vatns fyrir hvert kg salts, sem unnið
er. I frumvinnslunni þurfum við hins
vegar að nema burtu 34 kg af vatni vegna
sama saltmagns.
Þótt merkilegt megi virðast, er sáralítil
reynsla fyrir hendi á þessu sviði. Það er
ekki vitað til þess, að nokkur önnur salt-
vinnsluaðferð en hin náttúrlega sé rekin
við bein samkeppnisskiJyrði. Japan hefir
nokkra sérstöðu í þessu. Það land flytur
inn mjög mikið af salti, en styrkir jafn-
framt innlenda viðleitni til að framleiða
salt. Þar eru því nokkrir saltframleiðend-
ur, sem vinna dálítið salt úr sjó tækni-
lega. Auk þessa hafa sumar þjóðir, svo
sem Norðmenn, orðið að grípa til tækni-
legrar saltvinnslu úr sjó á styrjaldar-
tímum.
Á þessu sviði hefir hins vegar mikið
verið stuðzt nú við tækniþróun, sem mið-
ast við vinnslu á fersku vatni úr sjó. Við
Islendingar höfum að vísu nóg af því,
en svo er ekki um alla. Víða eru til staðir,
þar sem ferskt vatn er nær ófáanlegt, en
sjórinn tiltækur. Það vill svo einkenni-
lega til, að á sama tíma, sem þessi salt-
vinnslurannsókn fer fram hér, er Banda-
ríkjastjórn að láta gera viðtæka rannsókn
á möguleikum til að minnka kostnað við