Andvari - 01.10.1960, Blaðsíða 57
ANDVAIÍI
I FYLGD MED AUDEN
247
Wystan Hugh Auden.
hugur a að finna, og var það ekki sízta
ástæðan. Varð að samkomulagi, að ég
færi með Auden, dveldist með honum
á ýmsum stöðum, en austur á Fljótsdals-
héraði áttu leiðir að skiljast, enda ætlaði
Auden þá til Reykjavíkur aftur, án við-
dvalar.
Ólafur Briern kynnti okkur Auden á
Stúdentagarðinum eitt sólbjart kvöld,
þegar þeir voru komnir úr ferð sinni um
Suðurlandsundirlendið. Ekki fannst mér
skáldið ýkja mikill fyrir mann að sjá við
fyrstu sýn. Flann var að vísu sæmilega
hár vexti, en grannur mjög, mátti kallast
renglulegur; toginleitur, ekki svipmikill,
en þó sérkennilegur, Iiárið ljóst og lýju-
legt.
Skáldið tók mér Ijúfmannlega, og tók-
ust strax nreð okkur léttar og óheftar
samræður. Hann bauð til wiský-drykkju
að Hótel Borg, en áfengissölufyrirkomu-
lagið á Islandi olli honum ekki hvað
minnstri furðu og heilabrotum, en þá
var ekki haegt að fá keypt yín mcð lög-