Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 10

Andvari - 01.10.1960, Side 10
200 STEFÁN PJETURSSON ANDVAllI bókfell fyrir 1400; enda þeir fræðimenn þá teljandi á Norðurlöndum, sem nokkra hugmynd liöfðu um íslenzka sagnfræði eða íslenzkar bókmenntir fra síðari öldum. Háskólanámi Jóns Þorkelssonar var því stakkur skorinn. Hn hvort heldur það hefur verið af því, að ýmsir fengust þá við útgáfu og rann- sóknir á íslenzkum fornritum, þar á meðal Guðbrandur frændi hans Vigfús- son, sem þá var löngu frægur fræðimaður og átti heima í Oxford, eða hugur hans hefur þá þegar staðið til þess, að gera miðaldasögu og miðaldabókmennt- um íslendinga eitthvað svipuð skil og hinir fornöld þeirra og fornritum, þá er það víst, að þegar á fyrsta vetri sínum við háskólann í Kaupmannahöfn var Jón Þorkelsson byrjaður að kanna handritasöfn borgarinnar, einkum Arnasafn, og afrita heimildir, sem þar fundust um sögu og kveðskap íslendinga eftir 1400. Þess var heldur ekki langt að bíða, að árangur þess erfiðis sýndi sig í útgáfu- starfi. Árið 1884 bauðst hann til að annast nýja útgáfu Bókmenntafélagsins á kvæðum Stefáns Olafssonar, sem birzt höfðu rúmum sextíu árum áður á veg- um þess í litlu, ófullkomnu kveri. Var það boð bans þegið, og safnaði hann svo rösklega til hinnar nýju útgáfu, að „Kvæði Stefáns Ólafssonar" komu út í tveimur bindum í Kaupmannahöfn á árunum 1885—1886, með ítarlegri ævi- sögu skáldsins eftir Jón. Var sú útgáfa að því leyti nýjung í íslenzkum bók- menntum, að þar var í fyrsta sinn beitt fræðimannlegum vinnubrögðum við kveðskap þjóðarinnar á síðari öldum, þótt lengi hefði það þótt sjálfsagt við útgáfu íslenzkra fornrita. „Ég skoða merk rit frá 16. og 17. öld alveg eins þess verð“, sagði Jón í formála sínum fyrir Stefánskvæðum, „að við þau sé lögð rækt, eins og þó þau væru eldri . . .“ Á sömu árum og hann vann að útgáíu þeirra reit hann ítarlegan „Þátt um Björn Jónsson annálaritara á Skarðsá", með skrá um ritstörf hans, þótt ekki birtist hann fyrr en í Tímariti Bókmennta- félagsins árið 1887; sýnir hann einnig, hvert fræðimannshugur Jóns Þorkels- sonar stefndi strax á háskólaárunum. Sótti hann þó námið, þrátt fyrir slík hjá- verk, af kappi, enda lauk hann meistaraprófi í norrænum fræðum í Kaup- mannahöfn sumarið 1886, eftir aðeins fjögurra ára háskólanám. Á næstu tveimur árum sökkti hann sér niður í íslenzkan kveðskap á 15. og 16. öld, sem þá má heita, að hafi verið fræðimönnum, ekki aðeins erlend- um, heldur og íslenzkum, algerlega ókunnugt land. Lauk þeirn rannsóknum hans með miklu riti, skrifuðu á dönsku, „Om digtningen pá Island i det 15. og 16. árhundrede", sem hann varði við doktorspróf í Kaupmannahöfn og há- skólinn sæmdi hann doktorsnafnbót fyrir sumarið 1888. Þóttu það talsverð tíðindi, að riti um íslenzkar miðaldabókmenntir væri slíkur sómi sýndur af háskólanum í Kaupmannahöfn, sem til þess tíma hafði aldrei talið neinar íslenzkar bókmenntir háskólahæfar, nema fornritin. Fór Jón Þorkelsson i doktors-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.