Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 16

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 16
20 6 STEFÁN PJETURSSÖN ANDVAliI en það, að skjalasöfn nokkurra helztu embættismanna landsins: landshöfðingja, biskups, stiftsyfirvalda, landfógeta og amtmanns yfir suður- og vesturamti voru flutt upp á loft dómkirkjunnar í Reykjavík og lokuð þar hvert inni í sinni her- bergiskytru, en hverju embætti um sig gert að gæta skjalasafns síns þar; eitt herbergi var ætlað skjölunr frá embættismönnum, einkum sýslumönnum, úti um land, og landshöfðingjaritari látinn gæta þess. Enginn skjalavörður var settur yfir safnið, lítið sem ekkert unnið að skrásetningu þess, enda enginn lestrarsalur, þar sem gestir gætu haft þess nokkur not. En á þessu varð nú skjót breyting, er Jón Þorkelsson hafði verið skipaður landsskjalavörður, enda reyndist liann fljótt vera þar réttur maður á rétturn stað. Með reglugerð, sem landsskjalasafninu var sett sumarið 1900, var öllum embættum landsins og opinberum sýslunum gert að skyldu að afhenda því skjöl sín og embættisbækur, sem eldri væru en þrjátíu ára, og öll varðveitt embættisskjalasöfn frá liðnum tímum, svo sem stiftamtsskjalasafn, jafnframt lögð undir það. Sama surnar var landsskjalasafnið flutt af lofti dómkirkjunnar í sæmileg salarkynni á efsta lofti alþingishússins og opnað almenningi þar um haustið. Jón Þorkelsson gekk frá upphafi ríkt eftir því við embættismenn landsins, að reglugerð skjalasafnsins væri hlýtt um afhendingu skjala. Ekki liðu heldur nema fáar vikur frá því að hann varð landsskjalavörður þar til hann tók að gera kröfur á hendur landsbókasafni um skil á embættisbókum og embættis- skjölum, sem þangað höfðu lent, einkum úr biskupsskjalasafni. Varð lands- bókasafnið við þeim kröfum, og fór afhending á embættisskjalagögnum, sem þar voru geyrnd, að rnestu fram strax um aldamótin. En fjölda gamalla skjala og skjalabóka, sem þó enn voru við lýði, var hvorki að finna við embætti lands- ins, né á landsbókasafni, heldur í einkaeign, þar sem þau voru búin að vera áratugum eða kannski öldum saman. Kostaði það Jón Þorkelsson ekki hvað minnsta fyrirhöfn, að hafa upp á þeim og greiða götu þeirra til landsskjalasafns- ins. Óx það þó ört við röggsama innheimtu hans, enda mátti það eklci seinna vera, að það fengi ný og rúmbetri húsakynni, er það var flutt af efsta lofti alþingishússins, haustið 1908, í hið veglega safnahús, sem þá nýlega hafði verið byggt yfir það og hindsbókasafnið. Fékk það þar allrúmgóðan lestrarsal, stórar skjalageymslur og skrifstofu fyrir landsskjalavörð; enda var skjalasafnið þá nokkurn veginn kornið í það borf, sem það bafði síðan, þótt hvorki fengi það nafnið, sem það ber nú, Þjóðskjalasafn íslands, né Jón Þorkelsson embættis- heitið þjóðskjalavörður, fyrr en árið 1915, er ný lög voru sett um það; var þá og litlu síðar, árið 1916, sett ný reglugerð um salnið, sem herti á afhend- ingarskyldu embættismanna til þess — gerði öll embættisskjöl eldri en tuttugu ára afhendingarskyld, — og hefur sú reglugerð gilt um safnið síðan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.