Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 28

Andvari - 01.10.1960, Side 28
218 APOSTOLOS DASCALAKIS ANDVAIU jafnréttis og frelsis, þegar það livaS eftir annað og skilyrðislaust greiddi atkvæði með málstað grískra manna á Kýpur, er þcir voru að berjast fyrir frelsi sínu og báru réttlætiskröfur sínar fram á þingi Sameinuðu þjóðanna. Þá var ísland fögur undantekning meðal Evrópuþjóða og stóð staðfast og af fullri hollustu við málstað frelsisins, eins og það hefur alltaf gert í þúsund ár. Allir Grikkir munu jafnan verða þakklátir Islendingum fyrir þá djörfung, er þeir sýndu lijá Samein- uðu þjóðunum, og ég fullyrði, að í Grikk- landi njótið þér mestrar bylli allra Evrópuþjóða. Efnið sem ég hef valið til að ræða um er sá þáttur í menningarsambandi landa vorra sem mestum ljóma slær á, og á ég þar við líf og starf Norðurlandamanna í Grikklandi á miðöldum, í Byzantium, Miklagarði. Þangað komu þeir ekki, eins og svo víða annars staðar, sem árásar- mcnn og sigurvegarar, heldur komu þeir og lifðu í landi voru sem bandamenn og verndarar ölduin saman. Því miður vinnst mér ekki tími til að drepa á nema nokkur atriði, og mun ég þá reyna að tína til merkustu grísku heimildirnar, sem til eru um þetta efni frá miðöldum. Árið 1638 hvarf doginn í Feneyjum, Francesco Morosini, á brott frá Aþenu, sem hann hafði hrifið úr böndum Tyrkja nokkrum mánuðum áður eftir langa um- sát. Meðan á þeirri umsát stóð, hafði doginn látið skjóta á hið fornfræga hof Fídiasar, Parthenon, og eyðilagt það að nokkru. ÁSur en hann yfirgaf hina helgu borg Pallas Aþenu lét hann flytja burtu úr hofum hennar mörg forn listaverk í því skyni að skrcyta með þeim heimaborg sína, vatnadísina við Adríahaf. Einkan- lega lék honum mikill hugur á gríðar- stóru Ijóni, sem var innarlega við höfn- ina í Pireus, hafnarborg Aþenu. Hann lét því taka ljónið ásamt hinum öðrum lista- verkum og flytja það til Feneyja, og þar er það nú fyrir framan hliðið að Gömlu Höfninni. Þar þrumir það enn, stolt í leiðindum sínum hjá síkjum Feneyja- borgar, þar sem nærgöngulir ferðamenn spígspora og horfa forvitnisaugum á hið forna varðljón Aþenuhafnar. Á síður ljónsins eru grafin bönd í léttum sveiflum, og fannst mönnum einu sinni sem framið hefði verið tillitslaust skemmdarverk á fornu listaverki. Og hver veit hver eða bverjir gert hafa þennan gröft . . . ef til vill einhverjir framandi sjómenn, sem verið hafa að flækjast um auða höfnina í Pireus á fyrstu öldunum sem Tyrkir stjórnuðu hér. Kannske höfðu þeir ekkert að gera og styttu sér stundir með þessu dútli, þangaÖ til búið væri að ferma skipið og hægt væri að láta úr böfn. Snemma á öldinni sem leið voru nokkrir fornleifafræðingar fra Norðurlöndum í Feneyjum og skoðuðu bæði þetta og bitt. Þeir rannsökuðu ljónið, og fundu þá, sér til mikillar furðu, að það scm á það var höggvið var alls ekki venjulegt fánýtt krumsprang af rælm gcrt, heldur var það forn norræn áletrun skráð með rúnum. Fn margt hefur vesib ings Ijónið orðið að þola á sinni löngu ævi, sífellt nag af tímans tönn, illa með- ferð siðlausra manna, harðhnjóskuleg'i flutninga landa í milli og margt fleira, enda var nú svo komið, að flestar rúnirnar voru stórlega skemmdar, og ókleift virt- ist að lesa upphaf textans. En á því lék enginn vafi, að þetta var forn norræn rúnaáletrun, rist á þeim árum þegar sæ- konungar flæddu yfir Evrópu, víking' arnir, hinir hræðilegu norðurmenn, eins og íbúar Vestur-Fvrópu kiilluðu þá 1 angist sinni. En hvenær, hvaðan og hvernig komu þessir skandínavísku sæ- farar og sjóræningjar til hinna fornhelgu stranda Grikklands alla leið norðan af

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.