Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 39

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 39
WILLIAM HEINESEN: JÓMFRÚFÆÐINGIN í svartasta skammdeginu getur norðanvert Atlantshaf átt þaS til aS haga sér eins og á sumardegi meS stafalogni og blíSu; þótt sól sé lágt á lofti, skín hún stundum um hádegishil meS undarlega sterkum skærum ljóma. Isfuglaveður kölluðu gömlu sagnþyrstu farmennirnir slíka sumarblíðu á vetrardegi; þá lá ísfuglinn Halkyon á eggjum sínum, og illviðraguðirnir hvíldust á meðan. Þannig var veðrið á hafinu milli Islands og Færeyja síðustu dagana í des- ember 1919, þegar gufuskipið Botnía rakst skyndilega á rekdufl um hábjartan dag. Duflið rnaraði í hálfu kafi, og varðbergsmaðurinn kom ekki auga á það fyrr en of seint var að gefa varúðarmerki. Hann heyrði það urga við skipssíðuna, og nokkur skelfileg andartök hófst hann yfir stund og stað og hvarf heill og óskiptur heim til ungu konunnar sinnar — hann var aðeins tvítugur að aldri og nýkvæntur. En það gerðist ekki neitt, sprengjan var óvirk, ef til víll hefur lekið inn á hana, af því að hún var undir vatnsborðinu. Skipið hélt leiðar sinnar eins og ekkert hefði í skorizt, og öldurnar skutu logaleiftrum í sólskininu. Honum kom í hug, að það mundu þær eins hafa gert, þótt skipið hefði sokkið; sólin hefði haldið áfram að skína og allt gengið sinn vanagang. Nokkrum dögurn seinna var Botnia um það bil áttatíu sjómílur austur af Færeyjum. Þá var ísfuglinn hættur að liggja á, og þrjú þúsund hafmeyjar, sem Neptúnus gat við Thetys konu sinni, stunduðu skemmtanalífið af kappi, en það er fólgiö í að abbast upp á heiðarleg skip og gera þeim allt til miska. Það lætur þeim sætlega í eyrum, þegar hlaðar af borðbúnaði renna frarn af snar- hallandi borðum og skella í gólfið, þær æpa af kæti eins og börn á róluvelli, þegar vesalings farþegarnir ganga í ólýsanlega vítisvist sjóveikinnar, gráir í framan með ískalda svitadropa á enni, og þær taka andköf af hlátri, þegar grængolandi sælöður hvolfist freyðandi inn yfir þilfarið, svo að járnholur skips- ins nötrar og kveinkar sér með sárum stunum. En þá fyrst eru þær fullkomlega1 glaðar og ánægðar, ef skipið ferst með rá og reiða, en ekkert gremst þeim eins og að sjá aðgætna, varfæma sjómenn eða farþega, sem láta ekki bugast af sjóveiki heldur sitja ósæmilega hressir uppi í reyksal með tóddýglas og rjúk- andi vindla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.