Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 41
ANDVARI
JÓMFRÚFÆÐINGIN
231
Hann greip skapvonzkulega niður í alla þessa fáránlegu fatahrúgu. María
lá grafkyrr með lokuð augu og opinn munn.
— Hvert þó í heitasta! sagði hann og varð loðmæltur af undrun: Þú ert
þó ekki hinsegin? Jú, fari bölvað sem hún er ekki hinsegin! Herra minn trúr!
Þetta er dáfalleg uppákoma! Ráða sig hér um borð . . .
María vatt sér til og reyndi að losa sig undan hendi hans, sem fór rann-
sakandi um hana. Allt í einu settist hún snöggt upp og sendi lionum heiftúðugt
augnaráð.
— Farðu! sagði hún.
— Eg held þér farist ekki að derra þig, María, sagði hann og brosti and-
kannalega svo að sá í tennurnar.
Andlitið á Maríu afmyndaðist, hún beit sig í neðri vörina, og allt í einu
sló hún mögru og hnúabcm handarbaki í andlit þjóninuni. Hann greip fyrir
vitin og varð hlóðugur á hendinni.
— Eg skal fjandakornið . . . ! sagði hann og náði í handklæði. Hann
bleytti það og fór að kæla hlæðandi nef sitt fyrir framan veggspegilinn.
Andartak grét María hástöfum, með galopinn munn eins og bam, en allt
í einu smeygði hún sér fram úr rúminu og var á burt.
— Bíddu bara, tæfan þín! hrópaði hann eftir henni og hló ógnandi: Ég
skal sveimér finna þig í fjöru!
— Ja það er laglegt stand atarna, sagði frú Davidsen, jómfrúin á fyrsta
farrými, og fór að alklæða Maríu. Stúlkan hafði fengið sjó yfir sig og var
næstum því holdvot. Hún skalf svo að glamraði í tönnunum.
Frú Davidsen hafði kalt augnaráð eins og mávur og djúpa hrukku niður
eftir enni.
— Hvað ertu komin langt á leið? spurði hún.
— Átta mánuði, sagði María.
— Drottinn minn dýri! sagði frú Davidsen. Svona, drekktu þetta, þér
hlýnar við það.
— Á níunda mánuð, bætti María við í hálfum hljóðum og með lokuð augu.
— Þú er galin, sagði frú Davidsen. Leggstu þarna og hvíldu þig.
— Ég þarf ekki að liggja, sagði María. Ég er orðin góð.
— Ég hefði haldið það, sagði frú Davidsen. Við verðum að komast til
botns í þessari vitleysu. Ég tala við brytann.
— Æi nei, sagði María í bænarróm.
Frú Davidsen livarf og kom aftur með brytann. Hann leit á stúlkuna og
hristi höfuðið.