Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 49

Andvari - 01.10.1960, Síða 49
ANDVARI JÓMFRÚFÆÐINGIN 239 Þetta var ekki auðveld fæðing; Björn læknir fékk að taka á því sem hann átti til. Frú Davidsen var honum til aðstoðar með lieitt vatn, handklæði og lyf úr meðalakistu skipsins. Það leit ekki vel út fyrir Maríu litlu; grannur líkami hennar engdist undir brotsjóum kvalanna eins og skip í sjávarháska. Frú David- sen var ýmsu vön, en henni lá við öngviti af að sjá allt það blóð, sem streymdi um önnum kafnar hendur læknisins. Unga stúlkan var orðin raddlaus, en óhugnanlegt hryglukennt sog heyrðist úr kverkum hennar; hún hafði bitið sig í tunguna, dökkrauður vökvi vætlaði út úr munnvikunum. — Væri ekki rétt að gefa henni sprautu? spurði jómfrúin. Henni líður hræðilega illa. — Nei, sagði læknirinn, ekki enn. A ganginum fyrir utan stóðu skipsdrengirnir tveir og hlustuðu á hin ugg- vænlegu hljóð, sem heyrðust frá jómfrúbúrinu. Róbert stalst til að gægjast milli stafs og hurðar. Flann sneri sér snöggt undan og hljóp upp stigann eins og hann ætti lífið að leysa. Jóhann smitaðist af skelfingu hans og liljóp á eftir lionum. Hann fann hann einan í búrinu. — Hvað er það, Róbert? spurði hann skelfdur. — Flver fjandinn hefur beðið þig að koma hér og snuðra? sagði Róbert. Má maður aldrei vera í friði neins staðar? — Fleldurðu hún deyi? hvíslaði Jóhann. — Auðvitað! sagði Róbert og sneri sér undan. Auðvitað deyr hún. Það var allt í einu blóðbaði. — Hvað eruð þið að gera hér, ormarnir ykkar, kvað við fyrir aftan þá. Það var Jósef matsveinn. Hann stóð í eldaklefadyrurmm með logandi kerti í annarri hendi og sálmabók í hinni. — Og svo segið þið ekki einu sinni gleðileg jól! — Gleðileg jól! sögðu drengirnir hvor upp í annan. Matsveinninn setti kertið frá sér, stakk sálmabókinni í vasann og opnaði bjórflösku. — Mér finnst það nokkuð hart, sagði hann og saup vel á svörtu ölinu, — mér finnst það nokkuð hart, að enginn hér um borð, ekki nokkur kjaftur, virðist leiða hugann að því, hvaða kvöld er í kvöld, eða öllu heldur nótt! Hér haga sér allir eins og bölvaðir heiðingjar og kalkaðar grafir — guð fyrirgefi munninum á mér. Hkki hefur til dæmis fimm mínútum verið spanderað á einn jólasálm! Stýrimaðurinn, — sem annars er svo hugsandi maður — honum botna ég ekkert í. Þetta er þó andskotakornið — fyrirgefið munnsöfnuðinn — báheilög nótt, kannski sú helgasta í öllu almanakinu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.