Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 84

Andvari - 01.10.1960, Síða 84
274 BALDUR LINDAL ANDVARl nærri sjó. Þessi eru Krísuvík og Reykja- nestá. Við nánari athugun kemur einnig í ljós, að þau jarðhitasvæði liggja vel við aðalmarkaðnum. Þetta allt til samans gef- ur okkur aðstæður, sem flestir telja að minnsta kosti verðar fyllstu athygli. A þessum megingrundvelli fer sú rannsókn fram, sem nú verður drepið á. Saltverksmiðjan. Þótt þessi rannsókn hafi verið allslitr- ótt þann tíma, sem unnið hefir verið að henni, hefur hún oft notið þeirra beztu sérfræðilegra starfskrafta, sem völ er á hér og erlendis. Hlutverk sjálfs mín hefir að nokkru reynzt það að afla álits hinna sérfróðu manna og samræma starf þeirra. I þessari grein verður því rniður að stikla á stóru, og það verður ekki unnt að geta um nema lítinn hluta þeirra atriða, sem tekin hafa verið til meðferðar. En þó er vonað, að lesendur fái hugmynd um aðal- viðhorfin. Ég mun nú fyrst skýra lítil- lega frá tækniatriðum varðandi verk- smiÖjuna sjálfa. Við skulum strax í byrjun skipta salt- vinnslu úr sjó í tvo meginþætti. Sá fyrri er sá að nema burtu það mikinn hluta vatnsins, að eftir verði því nær mettuð saltlausn, og skal sá þáttur kallast frurn- vinnsla. Síðari þátturinn er að láta fara fram uppgufun á mettuðu saltlausninni og skilja frá saltið, sem myndast við það. Sá þáttur nefnist saltgerð. Saltgerðarþátturinn sem slíkur hefir reynzt fremur auðleyst viðfangsefni. Les- andinn mun strax koma auga á, hve líkar aðstæður eru þar og venja er til með salt- vinnslu úr skolvatni frá neðanjarðarsalt- lögum. Að vísu inniheldur sjórinn meiri aukaefni en venja er til með slíkt skol- vatn, en það krefst lítils fráviks í gerð og rekstri hinna hefðbundnu margþrepa eimingartækja. Vitað er, að slík tæki hafa verið notuð í sambandi við náttúrlega uppgufun á sjó, og þá við saltgerðina sjálfa. Til frekara öryggis voru þó gerðar tilraunir hér, sem sýndu, að unnt væri að ná mestum hluta saltsins á þennan hátt. Það var hins vegar annað vandamál við saltgerðina, sem vafðist fyrir okkur í fleiri ár. Þar sem aðalsaltmagnið hér fer til fisksöltunar, er nauðsynlegt að geta unnið gróft salt. Þessir venjulegu margþrepa eimar gefa hins vegar fínt salt, sem líkist borðsalti. Slíkt salt myndi ekki reynast vel við fisk, að því að talið er. 1 fyrstu beindust athuganirnar að því að finna hagkvæmar aðferðir til þess að fá stóra einstaka kristalla, svo sem gerist við nátt- úrlega uppgufun. Samsvarandi aðferð er þó augsýnilega óhagkvæm sökum þess, að þar eru kristallarnir fleiri vikur að myndast. Hraðri kristalmyndun reyndist þó unnt að ná með öðrum aðferðum, en hæpið virtist, að lögun þeirra og stærð yrði fullnægjandi. Einu sinni sem oftar varð tveimur okkar gengið um saltfiskverkunarstöð í Reykjavík. Svo vildi til, að þar var þá verið að salta með steinsalti, þ. e. salti, sem hafði verið brotið í námu, en ekki hinu venjulega Miðjarðarhafs sjósalti, sem mest flyzt af hingað. Ein handfylli af steinsaltinu gaf nýja hugmynd. Þetta salt leit ekki út fyrir að vera kristallað, heldur pressað saman. Því þá ekki að pressa smáu kristallana frá hinum venju- legu saltgerðartækjum saman, og mala síðan á sama hátt og hafði verið gert við þetta salt? Skömmu síðar leiddi eftir- grennslan í ljós, að verksmiðja ein í Kanada, sem vinnur salt til fisksöltunar, gerir það einmitt á þennan hátt. Þetta kanadíska salt var reynt við fisksöltun hér með góðum árangri. Nú hefir hafizt regluleg framleiðsla þessara saltþjappna hjá minnsta kosti einu fyrirtæki í Vestur- heimi. Vandinn við saltvinnslu úr sjó hér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.