Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 93

Andvari - 01.10.1960, Side 93
ANDVARI ÍSLENZK LJÓÐAGERÐ 1959 28 B „Á veðramótum" er fjórða ljóðabók Braga Sigurjónssonar og að sumu leyti bezt þeirra, þó að brevtingin frá „Hraun- kvíslum" og „Undir Svörtuloftum" sé ærin. Bragi var áður harla ádeilusamur í ljóði, róttækur í afstöðu og djarfmæltur í túlkun. Tókst honum iðulega að gera ádeilu sína skáldlega eða minnsta kosti athyglisverða, þó að stundum væri hún umdeilanlegt smekksatriði. Þessa gætti enn í „Undir Svörtuloftum", þó að þar bæri meira á ljóðrænum kvæðum en í fyrri bókunum, en ádeilan er horfin að kalla í „Á veðramótum". Bókin minnir helzt á litadýrð og mildi haustsins, ef maður beitir árstíðalíkingu. Söguljóðin eru meira að segja slétt og felld, en Bragi sviðsetti oft ádeilu sína á vettvangi þeirra fyrrum. Kímni hans er aftur á móti svipuð og áður, en af því tæi eru kvæði eins og Við ágústlok 1955 og Minnisleysi, skemmtilegar svipmyndir og laundrjúgur skáldskapur. Ljóðrænan verður honum þó árangursríkust. Kvæðin af ætt hennar eru yfirleitt stutt og reynast vandvirknis- lega hnitmiðuð, þó að auðvitað megi deila um bvggingarlag þeirra. Hér eru samt augljósar framfarir í Ijóðagerð Braga Sigurjónssonar. Hann byggir kvæðið utan um mynd atburðar, hughrifa eða afstöðu í stað þess að gera það að myndasafni. Aukaatriði málalenginganna víkja fyrir aðalatriðum, og ljóðin eiga sér lindir og ósa. Fyrsta kvæði bókarinnar, sem er samnefnt henni, sýnir mætavel árangur þessarar viðleitni. Ég efast um, að Bragi Sigurjónsson hafi ort annað kvæði betur: Um suðurloft fer sólin eldi, en sitja Kaldbak éljaský. Mín er byggð í miðjum firði, milli tveggja skauta bý: í dag er golan góð og hlý, en seint um morgun segja þyrði, Kannske verður vor um sveit, vötnin öll í sunnanflóði, grundin auð og æskuheit yfir nýjum blómasjóði. — Eða vetur veðrastóði hingað stuggað hafi á beit. Veit ég önnur lönd, sem láta ljósi og hlýju jafnar skipt. Allir lasta óvissuna, öryggið lofa mælt og klippt. En mundi ekki miklu svipt, væri ei neins að vona og gruna? Eljaköst af Kaldbakstindi, kátur þeyr af suðurfjöllum, sævargnýr í sviptihrinum, sumarblær á grund og höllum: Þegar lýkur leikjúm öllum, leggst ég sæll hjá þessum vinum. Og Á veðramótum er engin undan- tekning meðal kvæðanna í bók þessari, þó að mér þyki mest til þess koma. Llm- deilanlegast er orðaval Braga, þcgar hann vill verða sérkennilegur með því að fella Ijóð eða ljóðhluti í steypumót tilgerðar- innar. Víst er hér um álitamál að ræða, en íslenzkum skáldum hættir löngum til þess að gerast kringilyrt annaðhvort af til- gerð eða hroðvirkni. Nærfærni og hóf- semi er alveg eins nauðsynleg og að leggja sig fram um heildarmvnd Ijóðsins, því að bún verður til af einstökum drátt- um. Bragi er svo sérstæður í tilgerðar- lausu kvæði eins og Á veðramótum að nægja ætti. Og hann er of kunnáttusam- legt skáld til að láta smágalla verða sér að fótakefli. Jónas Tryggvason er nýliði á skálda- þingi, en mun hins vegar kominn til vits og ára, því að kvæðin í „Harpan mín í hylnum" eru sögð frá 25 ára tímabili. Ljóðin gætu verið frá árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Hér er mikil hagmælska og orðgleði, en skáldið ósjálfstætt í hrif-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.