Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1960, Page 94

Andvari - 01.10.1960, Page 94
284 ÍIELGI SÆMUNDSSON ANDVARI næmi sinni, oft bregður fyrir ómum af strcngjum DavíSs Stefánssonar, GuS- mundar BöSvarssonar og Tómasar GuS- mundssonar, ekki löngum cSa sterkum, en þó aSkominni hlutdeild í tónaslætt- inum. Hins vegar dylst naumast, aS kvæSi þessi séu ort af innri þörf, og víSa glitrar á skáldskap, þó aS hann sé raunar í hrotum. Jónas Tryggvason virSist söngv- inn þátttakandi í gleSi og liarmi lífsins, en hann þarf aS cinbeita sér bctur til aS fara ekki út af laginu. Bczt tekst honum í kvæSinu Dís næturinnar, þó aS miSbik þess sé meS augljósum hleSslu- mcrkjum DavíSs Stefánssonar, en fyrsta og síSasta erindiS eru Jónasi til sórna: Þú vitjar mín cnn á hvítum hesti að húmsins borgum og berð í fangi þér dýrust djásn af dagsins torgum. Þau fólust mér löngum sem fánýtt glingur á förnum vegi, en loga við barm þér scm lýsigull frá liðnum degi. Jódynur þinn er af þúsund strengjum, og þögnin hljómar. Það sindrar af hófum þíns hvíta fáks, og húmið Ijómar. Og nóttin klæðir sig nýrri skikkju í návist þinni, sem dagurinn aldrei eignazt gat af auðlegð sinni. Er rökkrið sveipaði rauðum tjöldum að ranni mínurn, þú gafst mér eld hins ófædda ljóðs í augum þínum. Þetta cr snoturt kvæði og liefði þótt góður skáldskapur fyrir þremur eða fjór- um áratugum. ArnliSa Álfgeir kann ég hvorki að aldurgreina né ættfæra, því að auðvitað cr þetta dulnefni, en ljóðabók hans, „Kirkjan á hafsbotni", hefur vakið nokkra athygli og margar árangurslausar spurnir um höfundinn. Kvæðin eru flest órímuð og heimspekilegar hugleiðingar, fléttaðar endurspeglunum úr ríki náttúrunnar. Arnliði Álfgeir er svo gefinn fyrir vísdóm, að mörg ljóð hans verða eins konar máls- háttasöfn, en sá kveðskapur á oft langt í land til skáldskapar. Svo er þó ekki hér. Kvæðin eru listræn og vandvirknisleg, en skáldskapnum iðulega dreift eins og brotasilfri úr rciðri hendi, höfundurin.n kann sér ekki hóf, og ýmsar gersemar hans komast engan veginn til skila. Þetta cru svipmyndir, en ramminn vill gleym- ast, og einstakir drættir samræmast ekki heildinni. Orðavalið á mikla sök á þessu, það er of tilgerðarlcgt og málsháttakennt, og hér segir greinilega til sín, hvað smá- Ijóð cru viðkvæm, þar má engu muna, les- andinn fer á mis við kvæðið, ef það nær ekki tilgangi sínum, þó að skáldið hafi reynt að vanda hugsun sína. Skáldskap- ur Arnliða Álfgeirs cr eins konar flug- eldasýning. Stundum situr skotið fast í hyssunni, iðulega kemst það sæmilega á loft til að villast út í nætursortann, en beinist öðru hvoru í átt til himins, spring- ur í marglitri ljósadýrð og slær töfra- ljóma á dimmbláan geiminn. Þá verða til kvæði eins og Minning: Ég mætti speking á förnum vegi og hann sagði: — Minning er sama og endurfædd nútíð. — Minning, það er þegar ævintýrið „cinu sinni var“ gcrist í annað eða máskc þúsundasta sinni — sagði skáldið. Karlssonurinn gægðist gegnum orðin, leit í augu kóngsdótturinnar og sagði: — Minning, það erum við, þegar eilífðina dreymir.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.