Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1960, Page 96

Andvari - 01.10.1960, Page 96
286 IIELGI SÆMUNDSSON ANDVARI og sér ekki blómið sjáum við ásýnd þína Guð. Sumir hinir, sem meira láta, ná hvorki þessari mynd né þessum tóni. Svona yrkir sá einn, sem kennir skáldlegrar til- finningar. Sigfús Daðason sætti allt of hörðum dómum ýmissa gagnrýnenda fyrir „Ljóð“ sín, sem hann orti ungur 1947—1951, en aðrir reyndu að hefja þann skáldskap hans til skýjanna. Af þeim kvæðum var rammt heimspekibragð, og skynjunin átti ekki nærri alltaf samleið með álykt- uninni, en menningarleg og listræn við- leitni höfundarins þurfti engum að dylj- ast, þó að formið væri ósköp laust í reip- unum. „Hendur og orð“ er samt ólíkt meiri bók að öllum árangri, skáldið hefur dvalizt lengi suður á Frakklandi og orðið sér úti um þroska og reynslu franskra mennta, enda ræður Sigfús sýnu betur við verkefni sín en áður var. Þó er sam- búð heimspekinnar og skáldskaparins enn ábótavant, ályktanirnar bera skynjunina einhvern veginn ofurliði, höfundurinn leggur ríka stund á að sanna lesandanum mannvit sitt og ýmis konar kunnáttu, en tekst ekki að sama skapi að opinbera hon- um frumlega skáldgáfu. Tæknikunnátta og heimspekiþekking þarf svo sem ekki að gera kvæði lífvænleg, ljóðlist verður ekki stunduð á sama hátt og blómarækt í suðrænum gróðurhúsum. Bók Sigfúsar er dálítið tortryggileg vegna þess, hve yrkisefnin eru óíslenzk. Kannski er barna- skapur að inna eftir jarðsambandi, þegar um ljóðlist er að ræða, en skáld finnur ekki til nema á einu máli og getur varla samlagazt öðrum örlögum en sinnar þjóð- ar, heimsborgari verður sá einn, sem hef- ur tileinkað sér líf og sögu átthaganna. En þessa verður ekki vart að heitið geti í kvæðum Sigfúsar. Hann yrkir óháð stað og stund, en eru þetta ekki viðsjár- verð erlend áhrif? Ég veit og skil að vísu nauðsyn þess, að íslenzk skáld læri af meisturum heimsbókmenntanna, en þau verða að íslenzka áhrif sín, svo að þau gerist reynsla þeirra og komist á fram- færi við íslenzka lesendur. Þetta hefur Sigfúsi Daðasyni mistekizt. Hann virðist í ljóðum sínum tala við sjálfan sig frammi fyrir stofuspegli, en láta umhverfið og mannlífið lönd og leið. Hitt er tvímæla- laust, að margar ályktanir hans eru snjall- ar og tímabærar, og ljóðstíll hans ein- kennist af ríkri samvizkusemi og einlægri nærfærni, þó að flest yrkisefnin sverji sig í ætt við tilgerð þeirra, sem hafa varla viðþol fyrir vitsmunum. Kvæðin eru undantekningalítið teygð í langar ljóð- línur, og þá hættir mörgum við að kom- ast á vald sviplausrar jafnsléttu, en sú ógæfa hendir ekki Sigfús Daðason. Hann situr í turni vandvirkninnar og sér þaðan langt og vítt, en er þar einsetumaður og sjaldan í kallfæri við lesendurna. Flann þarf að byggja stærri turn og efna til mikils gestaboðs, svo að skáldskapur hans svari fyrirhöfn. En aðfinnslur mínar hagga ekki þeirri staðreynd, að Sigfús Daðason ætlast mikið fyrir i ljóðagerð sinni, enda eins konar foringi róttæku deildar ungu skáldanna vegna mennt- unar sinnar og lífsskoðunar. Eigi að síður er skáldskapur hans einkennilega fjarlæg- ur og framandi þeim lesendum, sem hann vill vísa til vegar. Nútímamaðurinn hef- ur raunar lært að fljúga óraleiðir háloft- anna og kafa hyldýpi úthafanna, en samt er hann óþægilega settur í samfélagi og þjóðlífi án fótfestu. Smámunasamir fagur- kerar koma aldrei við sögu byltingarinn-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.