Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1962, Page 73

Andvari - 01.10.1962, Page 73
ANDVARI HÓMER OG HÓMERSÞÝÐINGAR 311 verki tekizt að bæta nýjum fulltrúa í hinn andlega fjallahring vorn, svo að oss gafst sýn til sjálfs Ólymps, hins gríska goðheims og hinnar grísku hetjualdar. Þó að undarlegt megi virðast, hefur til þessa skort samfellda rannsókn á Hóm- ersþýðingum Sveinbjarnar Egilssonar. Þess ber þó að geta, að á árunum 1948— 49 birtist á vegum bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs ný útgáfa af Elómersþýðing- um Sveinbjarnar í óbundnu máli. Sáum við Kristinn Armannsson rektor um þá útgáfu. Að beiðni þáverandi útgáfustjórn- ar Menningarsjóðs bárum við þýðinguna nákvæmlega saman við frumtextann. Er árangur af þeim samanburði að finna annars vegar í skýringum aftast í hvoru bindi þeirrar útgáfu og hins vegar í rit- gerð, „Hómer í höndum Sveinbjarnar", sem ég samdi og birtist í inngangi okkar Kristins með útgáfunni. En rit Finnboga Guðmundssonar, „Hómersþýðingar Sveinbjarnar Egilsson- ar“, sem hér liggur fyrir, er fyrsta heildar- rannsókn þessa víðtæka og fjölþætta rann- sóknarefnis. Hér er á ferðinni ungur vís- indamaður, sem hefur ekki vílað fyrir sér að leggja á sig það ómak að nema tungu Hómers til þess að verða fær um að inna þessa merkilegu rannsókn af hendi. Eitt, já, raunar tvennt tel ég at- hyglisvert og jafnframt skemmtilega til- viljun í þessu sambandi: Það fyrst, að praeses er kennari við hinn gamla skóla Sveinbjarnar Egilssonar, bið annað, að hann er sonur þess að öðru leyti ágæta og þjóðkunna merkismanns, sem reis önd- verður gegn því, að gríska yrði kennd við Menntaskólann. Má því svo að orði komast, að nú hafi sonurinn rækilega bætt fyrir syndir föðurins við grískuna. Vér gætum jafnvel látið oss til hugar koma, að hin gamla Nemesis væri eigi með öllu undir lok liðin, og færi betur, að bún léti oftar til sín taka á jafnheilla- vænlegan hátt. Um þá hlið þessa rits, sem að íslenzk- um bókmenntum snýr, mun ég ekki fjalla, enda hefur prófessor Steingrímur J. Þorsteinsson þegar gert því efni ræki- leg skil. Idins vegar mun ég drepa á nokkur atriði, sem snerta Hómer og sam- band þýðingarinnar við frumtextann. Aður en vér snúum oss að þessu viðfangs- efni, skal þó fyrst stuttlega athugað, hvernig praeses hefur hagað rannsókn- inni. Þctta er mikið rit. Ritgerðin sjálf cr 307 bls., en með viðauka er bókin öll 370 bls. Bókin skiptist í 11 kafla. Lang- lengstur þeirra er kafli sá, sem nefnist „Fornmálsáhrif". Er hann helmingi lengri en nokkur hinna kaflanna eða 72 bls. Kaflarnir „Ljóðaþýðingar" og „Óbundnar þýðingar" eru svipaðir að lengd, hinn fyrri 34 bls., en hinn síðari 36 bls. Kafl- arnir „Ferill" og „Einkunnaþáttur" eru jafnlangir, 31 bls. hvor. Kaflarnir „Úr sögu erlendra Hómersþýðinga. Bókakost- ur Sveinbjarnar Egilssonar" og „Nafna- þáttur" eru svipaðir að lengd: hinn fyrri 26 bls., hinn síðari 21 bls. Styttri eru kaflarnir „Aðdragandi", 19 bls., og „Fá- einir þættir", (þ. e. talmál, fuglar, gróð- ur, veður o. fl. og nýyrði), 14 bls., og að síðustu „Lokaorð", 4 bls. Af þessu yfirliti verður ljóst, að praeses ver meginhluta bókarinnar, rúmlega 200 bls., til að ræða ýmsa einstaka þætti þýð- inganna, að því er varðar mál þeirra og stíl og samband þeirra við frumtextann. Á fyrstu 82 bls., í köflum sem bera heitin „Verk og viðhorf", „Aðdragandi", „Ferill" og „Ur sögu erlendra Hómers- þýðinga. Bókakostur Sveinbjarnar Egils- sonar" býr praeses í liaginn fyrir sig. Þeir kaflar eru e. k. prolegoviena að megin- rannsókninni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.