Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 8

Andvari - 01.01.1998, Page 8
6 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI kveðinn upp endanlegur dómur.“ Bjarni segir einnig að fáir íslendingar hafi í lifanda lífi verið umdeildari en Jónas, en „jafnvel þeir sem honum voru í meginatriðum andsnúnir verða að viðurkenna hans miklu áhrif.“ (Mbl., Reykjavíkurbréf, 18. ágúst 1968). Það eru einmitt áhrifin á samtíðina sem hér skipta máli. Þau eru ekki bundin formlegum þjóðfélagsstöðum. Jónas frá Hriflu var að vísu ráðherra í nokkur ár, en margir hafa haft jafnmikil völd og hann að formi til, ýmsir meiri, og skildu þó varla eftir sig nein merkjanleg spor. Áhrif Jónasar fólust í hugmyndaauðgi hans, pólitískri yfirsýn og hæfileika til að orka á hugi manna í málflutningi og persónulegri kynningu. Það má líka taka dæmi úr sögu íslenskrar kirkju og kristni. Séra Friðrik Friðriksson var vafalaust mesti kristindómsboðandi íslendinga á þessari öld og gegndi hann þó eng- um forustustörfum innan þjóðkirkjunnar. Þarna kom til sú trúarlega köllun sem hann hlaut og hið persónulega áhrifavald sem hann hafði yfir ungum mönnum. Á þessu ári kvaddi þjóðin höfuðskáld sitt, Halldór Kiljan Laxness. Ársins 1998 verður minnst sem dánarárs hans. Penninn var hans veldistákn. Og Halldóri entist gæfa til að neyta snilligáfu sinnar, lifa og starfa langan aldur. Á sínum ferli var hann sá maður sem brá stærstum svip yfir bókmenntir og ritlist þjóðarinnar, mótaði íslenskan stíl fremur en nokkur annar maður. Og meir en það: hann setti með sínum töfrafulla penna svip á allt andlegt líf í landinu. Það sem hann snerti, í sögum sínum, ljóðum, greinum og ritgerð- um, sjáum við síðan með öðrum augum. „Hann var ljós allrar þjóðarinnar, frekar en nokkur annar maður á okkar tímum,“ eins og skáldið Jón úr Vör komst svo vel að orði. Jón kveðst hafa dáð Halldór alla tíð og bætti við: „Engu skipti þótt ég væri ekki alltaf sammála honum.“ (Mbl. 10. febrúar 1998). Þarna kemur fram að Halldór Laxness var umdeildur maður í þjóðfélag- inu, eins og Jónas frá Hriflu. Framan af tók hann mikinn þátt í umræðum um opinber mál og var þá hvassyrtur og illskeyttur svo að undan sveið. Síð- ustu áratugi ævinnar sat hann á friðarstóli og naut þá mikillar virðingar, nánast lotningar sem goð á stalli. Hinn umdeildi Halldór Kiljan þokaði í skuggann og kannski er yngra fólki ekki ljóst að á sínum tíma stóð ekki eins mikill styrr um nokkurn rithöfund í landinu og hann. Það mátti segja að heilar stéttir legðu á hann fæð, til dæmis bændur sem fyrirgáfu honum seint lýsingar Sjálfstæðs fólks á lífi einyrkjans í heiðinni. En átök Halldórs við samtíð sína fyrr á tíð eru ekki síður forvitnileg en hyllingin á honum á efri árum. Áhrif manna geta nefnilega komið fram í því að ögra öðrum mönnum og stæla þá til andstöðu. Myndin af skáldinu er ekki heil nema
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.