Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1998, Side 151

Andvari - 01.01.1998, Side 151
ANDVARI AF ÓSKRIFAÐRI LEIKLISTARSÖGU 149 stöðu Indriða Waages, heldur einnig hið auða drottningarsæti Stefaníu Guðmundsdóttur? Óyggjandi svör við slíkum spurningum fáum við naum- ast héðan af, en skýringin fellur ekki illa að staðreyndum málsins. Hvað Indriða varðar, er deginum ljósara, að hann taldi ekki rúm fyrir Kamban við hliðina á sér. Petta sýnir e.t.v. hversu bundnir hann og aðrir voru við forsendur hins gamla tíma, þegar einn leikstjóri var talinn nægja félaginu. Aðeins nokkrum árum síðar fannst engum tiltökumál, að tveir og jafnvel þrír fastir leikstjórar skiptu með sér sýningum L.R. á hverjum vetri. Þannig tóku öll viðhorf stakkaskiptum á örskömmum tíma. Þórunn Valdimarsdóttir rekur í Aldarsögu nokkuð gang mála eftir að fjaðrafokinu kringum Guðmund Kamban linnti. Par tengir hún brotthvarf Guðrúnar Indriðadóttur af sviði árið 1929 beint við grimmileg skrif Kamb- ans, sem þá var staddur á íslandi, um leik hennar.69 Veikindi Guðrúnar áttu þó sjálfsagt nokkurn þátt í þessari ákvörðun, eins og Þórunn nefnir einnig. E.t.v. náði hún ekki heldur að stilla saman strengi sína og yngra fólksins; hún var komin af léttasta skeiði, gat ekki lengur leikið hlutverk ungra kvenna með góðu móti og hafði hugsanlega ekki frekar en margar aðrar ágætar leikkonur áhuga á því að eldast á sviðinu fyrir augum áhorfenda. Framtíðin heyrði til Soffíu Guðlaugsdóttur, sem átti eftir að leika ýmsar helstu glansrullur hinna eldri leikkvenna, þó að hún yrði aldrei slík stór- stjarna í vitund þjóðarinnar sem frú Stefanía. Tímarnir voru aðrir, nýjar leikhúshugmyndir að ryðja sér til rúms um lönd og álfur, hin gömlu stjörnu-leikrit orðin aflóga, samstilltur leikflokkur (ensemble) að verða æðsta viðmiðunin. Langir tímar áttu að vísu eftir að líða, áður en Leikfélag Reykjavíkur eignaðist í raun og veru það „ensemble“ sem nafnlausir leikrýnar Vísis létu sem Indriði Waage væri að koma upp á sviðinu um miðbik þriðja áratugar- ins. Það bíður síðari Ieiksögufræðinga að gera þeirri þróun allri skil, því að höfundar Aldarsögu hafa látið það leggjast undir höfuð. ★ Eg hef nú fjallað um tvo aðskilda, en þó nátengda þætti í úttekt Þórunnar Valdimarsdóttur á hinum sérstæðu tímamótaárum í sögu L.R., þegar hið gamla „stjörnuleikhús“ var kvatt og fyrstu reikulu skrefin tekin í átt til nú- tímalegri vinnubragða. Sem sjá má virðist mér Þórunn ekki hafa náð tök- um á efnivið sínum. Það er ekki nóg með að henni sjáist yfir mikilvægar heimildir, hún ofmetur einnig gögn á borð við leikdóma og frásagnir sam- tíðarmanna, áttar sig ekki á hneigð þeirra, eins og það heitir á máli sagn- fræðinnar, túlkar þau án tillits til þeirra aðstæðna sem þau eru sprottin úr. Meginmistök Þórunnar snerta þó einn helsta þáttinn í aðferðafræði leik- listarfræðinnar. Hún skynjar ekki, hversu breytileg öll viðmið eru í listgrein
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.