Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1998, Síða 78

Andvari - 01.01.1998, Síða 78
76 JÓN YNGVI JÓHANNSSON ANDVARl eigi ekki rót sína í lestri á kvæði Gríms - eins og vonandi er orðið ljóst - heldur í ákveðinni hugmyndafræði um (íslenska) rómantík. Einn af sjálf- sögðu hlutunum um íslenska rómantík er sá að hún einkennist af upphafn- ingu íslenskra miðalda, eða fornaldarinnar eins og hún hefur nefnst fram á síðustu ár. Um þennan streng í ljóðum Gríms segir Páll Valsson: „Söguleg- ur áhugi, einkum á miðöldum, var einn gildasti þáttur rómantísku stefn- unnar og vegsömun Gríms á þessum tíma er í fullu samræmi við hana.“16 Pótt hann bæti við stuttu seinna: „En það er ekki einungis að sjálfstæðis- brýningin sé að mestu fjarri í kvæðum Gríms, heldur virðist sem forn- aldardýrkunin sé með talsvert öðrum hætti í kvæðum hans en annarra ís- lenskra skálda.“17 Ef komið er að kvæði Gríms með þær væntingar að öll vísun til fortíðar- innar sé fornaldardýrkun, reynist fyrirhafnarlítið að lesa það inn í þetta samhengi. Sá lestur verður aftur á móti ekki sannfærandi nema kvæðið sé um leið ekki lesið, a.m.k. ekki í heild. Eins og sýnt hefur verið fram á hér að framan er deginum ljósara að fornöldin hefur ekki einhlítt jákvætt gildi í kvæðinu, þótt samtími tröllsins hafi það enn síður. Túlkun Sigurðar og Páls byggir hins vegar á þeirri forsendu íslenska afbrigðisins af hugmyndafræði rómantíkurinnar að fornöldin í sjálfri sér sé alltaf glæst. Pað má því tala um að hér sé hugmyndafræði rómantíkurinnar endurframleidd í túlkun á henni, og sú endurframleiðsla verkar jafnframt sem styrking þessarar hug- myndafræði, þar sem hún sléttar yfir misfellu í ljóðum íslenskra skálda um rómantíkina með því að snúa ljóði Gríms í fornaldardýrkun.18 Grímur Thomsen orti ekki mörg ættjarðarljóð með fornöldina sem við- mið. I ljóðum hans er ekki að finna frjálsræðishetjur, eða horfna gullöld sem fyrirmynd að endurreisn samfélagsins. Kvæði Gríms um fornöldina eru því sem næst gjörsneydd öllum vísunum til annars en fornaldarinnar sjálfrar. Það er með öðrum orðum aldrei auðvelt að sjá í ljóðum Gríms beinar vísanir til samtíðarinnar. Fornöldin verður honum ekki tilefni til beinnar gagnrýni eða umfjöllunar um samtíma sinn; um þetta segir Páll Valsson: Ólíkt t.d. Jónasi Hallgrímssyni, sem dregur upp mynd af glæstri hetjuöld sem stafar af heildarljóma, þá einbeitir Grímur sér frekar að hinum einstöku hetjum sem skera sig úr og aðdáun hans á fornöldinni virðist stundum einskorðast við þær. Hann notar hetjurnar næstum aldrei til að draga af þeim víðtækar ályktanir heldur birtast þær miklu fremur sem einstakar, nánast undantekningar, og má segja að Grímur telji það fornöldinni helst til tekna að hafa fóstrað þessar hetjur.19 Eins og áður var bent á er þetta að vissu leyti rétt, en sá úrdráttur sem kemur fram í orðum Páls á kannski ekki alveg rétt á sér. Með því að segja að Grímur telji það fornöldinni „helst“ til tekna að hafa fóstrað hetjur er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.