Andvari - 01.01.1998, Blaðsíða 42
40
GUNNLAUGUR A. JÓNSSON
ANDVARI
Skálholtsstaðar í framkvæmd. Þar varar hann við því að unnt sé að
treysta einungis á ríkisvaldið og heitir á liðveislu þeirra einstaklinga
þjóðarinnar, sem unna kirkjulegri og sögulegri menningu hennar, og
bætir við: „Því væri eðlilegt og æskilegt, að ríkisvaldið afhenti bisk-
upi fyrir kirkjunnar hönd eignar- og umráðarétt yfir þessu fyrsta óð-
ali kirkju vorrar með því fjárframlagi, sem sóma þess er samboðið.“
Hann sýnir síðan fram á að sérhver skírður íslendingur sé „andlegur
sonur Skálholtsdómkirkju“ og bætir við: „Það hefur þótt öllum góð-
um mönnum hinn mesti ósómi að vanrækja móður sína.“ Greininni
lýkur hann á því að hvetja prestana, og einkum þá sem þjóna í hinu
forna Skálholtsstifti, til að hafa forgöngu í þessu máli „og hrinda
þeirri smán af oss og börnum vorum, að vér afrækjum vora andlegu
móður.“
Þessi grein sr. Sigurðar er ákaflega vel skrifuð og einkennist af
sterkri sannfæringu fyrir mikilvægi málstaðarins. Honum tekst að
draga upp heillandi framtíðarsýn af Skálholti og greinin ber með sér
það einkenni höfundarins að hann var snjall áróðursmaður og átti
auðvelt með að hrífa menn með sér. Greinin vakti líka athygli og átti
örugglega ekki lítinn þátt í að fleiri og fleiri fóru á næstu árum að
sýna málinu áhuga og peningagjafir tóku að berast til styrktar endur-
byggingu Skálholtskirkju. Margt af því sem sr. Sigurður lagði til í
grein sinni árið 1943 komst smám saman í framkvæmd og í mörgum
tilfellum mun fyrr en hann hafði þorað að vona því að hann talaði
um að naumast mætti hugsa sér að koma endurreisninni í fram-
kvæmd á skemmri tíma en 40-80 árum. Aðeins 20 árum eftir að
greinin var skrifuð var dómkirkja vígð í Skálholti og við það tækifæri
færði ríkisstjórnin þjóðkirkjunni Skálholtsstað að gjöf og fylgdi gjöf-
inni fyrirheit um einnar milljónar króna árlegt framlag til uppbygg-
ingarinnar.
Aður en ráðist var í byggingu kirkjunnar fóru fram fornleifarann-
sóknir á staðnum,48 eins og sr. Sigurður hafði lagt til í grein sinni og
Skálholtsfélagið, undir forystu sr. Sigurbjörns Einarssonar, áréttaði
síðan kröftuglega eftir stofnun þess og fékk því framgengt að í þær
var ráðist. Leiddu rannsóknir þessar margt forvitnilegt í ljós, sem
vakti athygli fjölmiðla og var til þess fallið að auka áhuga almenn-
ings á Skálholti. Bar þar hæst fund steinþróar Páls biskups Jónsson-
ar. Þegar kista hans var opnuð var fjölmenni viðstatt. Þá stóð yfir