Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 94

Andvari - 01.01.1998, Page 94
92 ÁRMANN JAKOBSSON ANDVARI Ég elskaði eittsinn stelpu. Hún var heimsk, og ég var vitlaus.9 Þannig hefði Dagur varla ort nema vegna áhrifa frá Jóni Thoroddsen. Þessi hálfkæringur í garð ástarinnar veldur því að hún er flóknara fyrir- bæri en í ljóðum rómantískra og nýrómantískra skálda. Jón skynjar ástina sem sjálfhverfa: ástin er ást á sjálfri sér. Það er kannski engin tilviljun að eina ástarljóð Flugnanna sem hefur góðan endi fjallar ekki um ást karls og konu. Það er flugan um Oscar Wilde, „Vita nuova.“ Undarlegur söngur vaknar í huga hans. Hann er útlagi, sem á heima handan við haf- ið. Þar bíður hans eitthvað, sem hann elskar. Þú, sem ég elska. Ég hrindi bátnum úr nausti, því að ég er sjúkur af heimþrá. Og ég hrópa til þín yfir hafið: Með hvítum seglum stefnir hann að ströndum þínum, útlaginn, sem elskar þig. (39) Eins og Gísli Sigurðsson hefur bent á má leiða rök að því að þessu ljóði sé ætlað að verða eins konar niðurstaða annarra ástarljóða bókarinnar.10 Sú niðurstaða er þá að ástin snúist um sjálfa sig enda er sá sem ávarpaður er fjarlægur og sama kyns og sá sem elskar. Útlegðin sem ljóðið snýst um er táknræn og þú sem útlaginn elskar getur haft víðtæka skírskotun. En um leið er skírskotað til Oscars Wilde sem elskaði Alfred Douglas sem dvaldi erlendis meðan Wilde sat í fangelsi. Samband þeirra var bannyrði í Englandi fram yfir seinna stríð og ekki síð- ur á íslandi þar sem aldrei er minnst á slíkar ástir í riti fyrr en löngu síðar.11 Allir gátu sameinast um að dæma Oscar Wilde en Jón kaus að skilja hann í staðinn og halda uppi vörnum fyrir hann, eins og Virginia Woolf, E. M. Forster, Lytton Strachey og félagar þeirra í Bloomsburyhópnum gerðu á árunum fyrir stríð. Eins og kom fram í frásögn Guðmundar Hagalíns mun ekkert skáld er- lent hafa haft viðlík áhrif á Jón Thoroddsen og Oscar Wilde. Til hans sækir hann skartdýrkunarstíl leikrita sinna.12 Sumar flugur Jóns bera einnig vitni þeim stíl. Þá er greinilegt á frásögn Guðmundar Hagalíns að Jón hefur til- einkað sér háðskan tón Oscars Wilde sem í felst uppreisn gegn siðavendni Viktoríutímabilsins og birtist í siðleysi og afstæðishyggju. Listin á að hafa tilgang í sjálfri sér, „l’art pour l’art“, en ekki skýran siðbætandi móral eins og Guðmundur Hagalín og hin rómantísku skáld nítjándu aldar kusu. Hún á að vera, ekki boða. List á að vera annað en speki. Eða eins og Jón orðaði það í Skinfaxa, blaði menntaskólanema, á því herrans ári sem Guðmundur predikaði yfir honum í Björnsbakaríi: „List er að setja eitthvað þannig fram að aðrir verði varir við það sem listamanninum bjó í brjósti.“13 Ef marka má sögn Guðmundar Hagalíns virðist Jón hafa haft í kringum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.