Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1998, Side 125

Andvari - 01.01.1998, Side 125
andvari RÖDD ÚR HÁTALARA - SKILABOÐ í TÓTTARVEGG 123 keðjurnar. Þær voru of langar og við fórum niður í Fornahvamm til að stytta þær og unnum að því í anddyrinu, og það var kalt og blautt að krafla í þeim og setja þær upp °g leggja aftur á heiðina með bílana svo létta, að hjólin höfðu enga spyrnu (bls. 129- 130). Lesandinn er þannig fræddur nákvæmlega um skort á frostlegi, of langar keðjur, hvernig best sé að hlaða bíla þannig að þeir spyrni vel í þegar ekið er upp hálar brekkur og svo framvegis. Rétt á eftir þessari lýsingu kemur síðan önnur af erfiðri ferð um miðjan vetur og áætlunarbílum sem voru >,stórir brezkir herbflar“. Það sem er mikilvægast við þessar lýsingar er að þær eru lýsingar á sveit. Lað er verið að lýsa umhverfi sem er ekki borgarumhverfi en sem er ófrá- víkjanlega bundið því sökum þess að hér er verið að lýsa tækniheimi, heimi samgangna og véla sem þrátt fyrir að vera mitt í náttúrunni er algerlega klofinn frá skrásetningarkerfi hennar. Sveitin sem náttúra er aðeins til sem textaheimur í bréfi og í Sjötíu og níu af stöðinni er henni aldrei lýst sem raunverulegum lifuðum starfsheimi. Hún er aðeins til sem skilaboð, sem minning og þrá. Hún er afmörkuð af tækninni sem nýi borgarmaðurinn hefur tileinkað sér, þessi maður sem knúinn er áfram af boðflutningum sem eru rafrænir, afdráttarlausir og þarfnast engrar sérþjálfunar en eru samt villandi fyrir þá sem ekki skilja samhengi boðflutninganna. Skrásetn- ing borgar- og tæknirýmisins þenur sig því langt út fyrir borgina. Hún fylgir tækninni, vegunum og fjölmiðlunum. Hún skilgreinir náttúruna sem við- fang sitt en ekki sem geymslustöð fyrir upplýsingar. I Sjötíu og níu afstöðinni er því ekki verið að leggja áherslu á aðskilnað mismunandi búsetuforma eða staðbundinna heima í sjálfu sér, heldur miklu frekar á muninn á því hvernig búsetuformin og næsta umhverfi þeirra eru tengd skrásetningaraðferð fyrirbæranna. Ef náttúran í Landi og sonum geymir spor og ummerki sögunnar vegna þess að gamla sveitasam- félagið er mitt í henni og skilgreinir sig út frá sambandinu við hana, þá er hún í Sjötíu og níu af stöðinni fyrst og fremst viðfang skrásetningar sem miðar sig við tæknina, skrásetningar sem ekki fer fram í gegnum náttúruna heldur reynir að skrásetja náttúruna, setja hana fram út frá forsendum tekninnar. Röddin úr hátalaranum sem skipar og sendir, sem hreyfir lík- amana og vélarnar til um tæknirýmið og heldur áfram að tala, hlutlaus og einörð þegar Ragnar er allur (Þriðja síðasta setning bókarinnar er: „Hundrað og fjórtán af stöðinni, sagði pían í hátalarann“ (bls. 148).) er táknmynd þessa skrásetningarforms sem færir boð á milli sviða á rafrænan hátt, sem skráir þær út frá forsendum rafræns miðilsins og gerir viðtakend- ur sína valdalausa, jafnvel þótt þeir ráði yfir þekkingu á tæknibúnaðinum. Það er rétt sem Njörður R Njarðvík bendir á að það síðasta sem Ragnar tekur eftir á dauðastundinni er Mælifellshnjúkur: - „ég veit Hnjúkurinn er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.